Út að borða gegn ofbeldi

Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með því …
Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með því að fara út að borða með börnin. Bæði veitir þú börnunum gleði og átt með þeim samverustundir og styður í leiðinni mannréttindi barna og vernd þeirra gegn ofbeldi. istock photos

Út að borða fyrir börnin, fjáröflunarátak Barnaheilla og veitingastaða, hefst í dag. Alls styðja 40 staðir átakið á 109 stöðum í öllum landsfjórðungum með því að láta hluta af verði valinna rétta renna til verkefna sem snúa að vernd barna gegn ofbeldi. Aldrei hafa fleiri staðir tekið þátt í átakinu sem nú fer fram í sjöunda sinn og stendur yfir í einn mánuð. Hér má sjá lista yfir þau veitingahús sem taka þátt.

„Við erum himinlifandi með þennan fjölda veitingastaða sem eru tilbúnir að styðja málstaðinn á þennan hátt,“ segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi, í fréttatilkynningu vegna átaksins.

„Samtökin okkar eru háð velvilja og stuðningi bæði almennings og fyrirtækja og þetta hjálpar okkur að vinna enn betur að þeim frábæru og mikilvægu verkefnum sem heyra undir þennan málaflokk hjá okkur.“ Ísland festi barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í lög árið 2013 og í honum er börnum tryggður réttur til verndar gegn ofbeldi. Það er hlutverk hinna fullorðnu að gæta þess að hvert og eitt barn njóti réttar síns.

Eitt stærsta verkefni Barnaheilla sem snýr að vernd barna gegn ofbeldi er Vinátta, forvarnarverkefni gegn einelti í leikskólum. Verkefnið er danskt að uppruna, byggt á nýjustu rannsóknum um einelti og hefur reynst sérstaklega vel. Nú er unnið að því að þýða og staðfæra efni fyrir fyrstu bekki grunnskóla.

„Þú getur slegið tvær flugur í einu höggi með því að fara út að borða með börnin. Bæði veitir þú börnunum gleði og átt með þeim samverustundir og styður í leiðinni mannréttindi barna og vernd þeirra gegn ofbeldi,“ segir Erna og hvetur sem flesta til að kynna sér verkefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert