Ofurdrykkur Lukku á Happ

Græn og girnileg leið til að byrja daginn.
Græn og girnileg leið til að byrja daginn. Gunnar Sverrisson
Við þreytumst aldrei á að finna bragðgóðar leiðir til að byrja daginn. Þessi græni drykkur er dásamlega góður en uppskriftin kemur frá Lukku á Happ og er úr bókinni Máttur matarins en þessi drykkur er einmitt það – máttugur.

fyrir 2

1/3 ananas
2 sellerístilkar
3 cm bútur af fersku engiferi
1 límóna, afhýdd
1 lúka spínat
½ tsk. matcha-te
1 msk. hampfræ eða -duft
3 mjúkar döðlur
ríflega 1 dl frosið mangó

Setjið ananas, sellerí, engifer og límónu í safapressu og pressið. Hellið safanum í blandara og blandið afganginum af hráefninu vel saman við.

Drekkið með bros á vör. 

Spínat inniheldur mikið af próteini, járni og vítamínum og steinefnum.
Spínat inniheldur mikið af próteini, járni og vítamínum og steinefnum. Gunnar Sverrisson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert