Tyrkneskt kyntröll tryllir með salti

Dans, matreiðsla og tælandi líkamsburðir sameinast í Salt Bae.
Dans, matreiðsla og tælandi líkamsburðir sameinast í Salt Bae. Skjáskot Instagram

Tyrkneski kokkurinn Nurset Gökçe, betur þekktur undir gælunafninu Salt Bae, er að trylla heiminn með sérstökum töktum og söltunaraðferð. Stórstjörnurnar eru sjúkar í hann en bæði Ben Affleck og Rihanna hafa sést klæðast bolum með mynd af kokknum knáa. Leonardo DiCaprio borðaði á veitingahúsi hans fyrir skemmstu og lét vel af en kokkurinn knái hefur vart undan að opna ný veitingahús en hann rekur veitingahús í Tyrklandi og Dubai sem heita Nusr-Et. Þar að auki eru veitingahús í hans nafni bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi en hann þykir mikill meistari í meðhöndlun á kjötmeti.

Rihanna hefur dálæti á salt-kyntröllinu.
Rihanna hefur dálæti á salt-kyntröllinu. Skjáskot Instagram

Það er eiginlega ekki hægt að lýsa sérkennilegum stíl kokksins en hann þykir minna á dansara, hvernig hann meðhöndlar mat og jafnvel klámmyndaleik á köflum. Salt Bae saltar einnig allan mat með sérlegri olnbogatækni. Orð geta ekki útskýrt þennan sérlega mann – við látum því myndbandið um rest. 

Masaj müzik Sevgi

A post shared by nusr_et (@nusr_et) on Oct 13, 2016 at 6:27am PDT

Nusret Symphony orchestra No.5#saltbae #saltlife #salt

A post shared by nusr_et (@nusr_et) on Feb 19, 2017 at 2:19am PST



DiCaprio trítaði sig á veitingahúsi Salt Bae fyrir skemmstu.
DiCaprio trítaði sig á veitingahúsi Salt Bae fyrir skemmstu. Skjáskot Instagram
Matreiðlsumaðurinn er mikill karakter og hefur mikið dálæti á kvikmyndinni …
Matreiðlsumaðurinn er mikill karakter og hefur mikið dálæti á kvikmyndinni Guðföðurnum og Scarface. Skjáskot Instagram
Einn æstur aðdáandi fékk sér þetta húðflúr eftir að hafa …
Einn æstur aðdáandi fékk sér þetta húðflúr eftir að hafa fylgst með Salt Bae á samfélagsmiðlum og heillast af honum. Skjáskot Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert