Nigella og Svavar Örn frysta léttvín

Svavar Örn er skemmtilegur útvarps- og sjónvarpsmaður og lætur gjarnan …
Svavar Örn er skemmtilegur útvarps- og sjónvarpsmaður og lætur gjarnan góð ráð flakka í morgunþætti sínum á K100. Ernir Eyjólfsson

Hárgreiðslumeistarinn og gleðigaukurinn Svavar Örn Svavarsson elskar góðan mat og góð ráð. Í morgunþættinum Svali og Svavar á útvarpsstöðinni K100 fóru þeir félagar yfir nokkur góð húsráð. Þar deildi Svavar Örn einu af sínum uppáhaldshúsráðum en það er fengið frá gúrmet-drottningunni Nigellu Lawson. „Hún frystir afgangs léttvín í klakapokum til að setja út í sósur og matargerð. Hún gengur jafnvel svo langt að hella úr glösum sem ekki klárast enda sóar hún engu,“ sagði Svavar Örn í morgun sem segist þó ekki ganga svo langt en hann hefur lengi vel fryst afganga af léttvíni í umræddum tilgangi. „Það minnir mig á að mig vantar klakapoka,“ sagði Svavar sem er með ráð undir rifi hverju enda með eindæmum úrræðagóður og skemmtilegur maður.

Nigella er sjóðheit og nánast ómögulegt að skilja að hún …
Nigella er sjóðheit og nánast ómögulegt að skilja að hún sé 57 ára. Skjáskot pintrest.com/mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert