Aldrei aftur þvottaefni

Þvottaboltinn er lítill og krúttlegur og þykir henta vel fyrir …
Þvottaboltinn er lítill og krúttlegur og þykir henta vel fyrir viðkvæma húð.

Mikið hefur verið rætt um skaðsemi ýmissa hreingerningarvara og eru margir farnir að stórminnka notkun á hefðbundnum hreingerningarvörum. Þvottaboltinn endist í 1000 þvotta og allt að þrjú ár. Boltanum er einfaldlega skellt í vélina með þvottinum en hann sótthreinsar, vinnur á óhreinindum og eyðir lykt en ekki þarf neitt annað efni með. Boltinn þykir virka vel fyrir þá sem eru með viðkvæma húð en hann er laus við skaðleg efni. Á heimasíðu boltans er því haldið fram að boltinn þurrki ekki húðina líkt og mörg þvottaefni gera.

Matarvefurinn hefur prufað boltann og fannst árangurinn góður. Við settum þó nokkra dropa af lavender með til að fá ilm. 

Boltinn kostar 7.900 krónur og fæst hér

Lumar þú á skemmtilegu húsráði? Sendu okkur ábendingu á matur@mbl.is 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert