Fáránlega auðvelt grænmetislasagna

Sniðugt er að gera lasagnað kvöldið fyrir matarboð. Þá hefur …
Sniðugt er að gera lasagnað kvöldið fyrir matarboð. Þá hefur þú meiri tíma með gestunum. Good Housekeeping

Lasagna er uppáhald ansi margra og er eitt af því sem er erfitt að klúðra. Uppskriftirnar eru samt misjafnar eins og þær eru margar og tilbrigðin ansi fjölbreytileg oft á tíðum. Grænmetislasagna er alltaf æðislegt og hér er ein skotheld uppskrift sem við mælum hiklaust með.

Uppskrift:

  • 2 msk. ólífuolía
  • 1 meðalstór kúrbítur, skorinn í sneiðar
  • 1 meðalstór rauð paprika, kjarnhreinsið og saxið
  • 1 meðalstór laukur, saxaður
  • 3 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 1 dós af maukuðum tómötum
  • 1 pakki forsoðnar lasagna-plötur, brotnar í stóra bita
  • ricotta-ostur
  • mozzarella-ostur, rifinn niður
  • fersk basil-lauf til skreytinga

Aðferð:

  1. Hitaðu olíu á pönnu upp í miðlungshita. Settu kúrbítinn, rauðu paprikuna, laukinn, hvítlaukinn og ½ tsk. af salti. Steiktu í sex mínútur og hrærðu vel í. Lækkaðu hitann og helltu tómötunum saman við.
  2. Bættu lasagna-plötunum saman við og passaðu upp á að þær séu allar vel ofan í. Setjið lokið á og eldið í 15 mínútur á lágum hita. Athugið þá með plöturnar. Þær eiga að vera næstum því „al dente“ eða tilbúnar.
  3. Setjið því næst ricotta-ostinn með skeið ofan á lasagnað. Setjið lokið aftur ofan á pönnuna og eldið í 10 mínútur til viðbótar eða þar til osturinn er fallega bráðinn og lasagna-plöturnar eru tilbúnar. Stráið salti og pipar yfir og skreytið með basil-laufum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert