Taco unnendur eru að tryllast

Þetta par er greinilega mjög spennt yfir því að gifta …
Þetta par er greinilega mjög spennt yfir því að gifta sig á Taco Bell. Taco Bell

Nú gefst nýtrúlofuðu og taco-elskandi fólki einstakt tækifæri á að gifta sig í mekka tacosins: Sjálfu flaggskipi keðjunnar í Las Vegas.

Til að gera langa sögu stutta geta pör skráð sig í keppni og í vinning er draumabrúðkaup á nýjasta veitingastað keðjunnar í Las Vegas sem jafnframt verður flaggskip hennar. Það eina sem þarf að gera er að búa til stutt myndband eða mynd sem lýsir því hvernig Taco Bell hefur verið órjúfanlegur hluti af þinni ástarsögu á Instagram eða Twitter. Merkja á myndirnar/myndböndin með myllumerkinu #LoveandTacosContest til að taka þátt.

Búist er við mikilli þátttöku enda ljóst að Taco Bell hefur verið mikilvægur stefnumótastaður hjá mörgum pörum en aðeins eitt par mun sigra. Hin þurfa þó ekki að örvænta því frá og með júní geta pör gift sig í prívat kapellu á Las Vegas-staðnum og haldið glæsilega taco-veislu fyrir allt að 15 manns fyrir einungis 600 dollara – sem gera rúmar 70 þúsund íslenskar krónur sem verður að teljast ansi vel sloppið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert