Dýrðlegt döðlubrauð með pistasíum

Linda Björk fer mikinn í eldhúsinu þessa dagana.
Linda Björk fer mikinn í eldhúsinu þessa dagana. Ljósmynd: Iris Ann Sigurðardóttir

„Um daginn sá ég auglýstan döðlusykur og varð ég mjög spennt að prufa hann enda elska ég að nota döðlur í matargerð," segir Linda Björk Ingimarsdóttir en hún bakaði þetta gómsæta brauð fyrir sérblað Morgunblaðsins um mat sem kom út í gær.

„Ég skellti mér strax útí Nettó þar sem ég náði, held ég, síðasta pokanum. Ég velti töluvert fyrir mér hvað ég ætti að nota hann í og langaði að baka gott brauð. Að lokum varð þetta dýrðlega brauð útkoman og ekki er verra að auðvelt er að gera það vegan. Þetta er brauð sem má borða með góðri samvisku enda er það stútfullt af næringu og náttúrulegri sætu.“

Brauðið er dásamlegt með smjöri.
Brauðið er dásamlegt með smjöri. Ljósmynd: Iris Ann Sigurðardóttir

2 bollar döðlur
1 bolli vatn
1 msk. smjör eða kókosolía
1 tsk. matarsódi
1/4 bolli eplamauk eða 1 egg
1 bolli hveiti/heilhveiti
1 bolli haframjöl
1 tsk. lyftiduft
2/3 bolli döðlusykur, það má alveg setja 1/2 bolla ef þið viljið minnka sykurinn enn meira
1/2 bolli saxaðar pistasíur

Sjóðið döðlurnar með vatni og smjöri/kókosolíu við miðlungs hita,. Bætið einni tsk. af matarsóda við og látið malla þar til blandan er orðin maukkennd og látið þá kólna.

Setjið önnur innihaldsefni í skál og blandið saman.

Setjið döðlumauk saman við.

Penslið brauðform, deiginu komið fyrir og bakað í ofni í 40 mínútur við 180 gráður eða þar til prjónninn kemur hreinn úr brauðinu.

Pistasíurnar gefa brauðinu skemmtilegt bragð.
Pistasíurnar gefa brauðinu skemmtilegt bragð. Ljósmynd: Iris Ann Sigurðardóttir
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert