Líklega fallegustu kaffibollar á Íslandi

Svo vinsæl eru málin að hluti litanna er jafnvel uppseldur …
Svo vinsæl eru málin að hluti litanna er jafnvel uppseldur hjá framleiðanda. Stelton.com

Ferðamál undir kaffi og heita drykki hafi aldrei verið vinsælli enda hafa flestir það hugfast að minnka sóunina og mengunina sem fylgir einnota málum. Fjöldi kaffihúsa er einnig farinn að bjóða afslátt þeim sem koma með eigin kaffimál. Að því sögðu skiptir máli hvernig málið lítur út og virkar. Auðvitað þarf það að halda drykknum vel heitum en það skiptir líka máli að auðvelt sé að drekka úr því – og að það sé smart!

Stelton hefur lengi verið mjög vinsælt merki í kaffikönnum og ýmsum varningi. Kaffimálin frá fyrirtækinu hafa því lengi selst vel en ferðamál hafa verið fáanleg um nokkurt skeið. Nú virðist mikið tískuæði hafa gripið um sig og flestir fagurkerar landsins láta vart sjá sig með einnota mál heldur heftur Stelton tekið við. Ferðamálin fást í hinum ýmsu litum, bæði fást mattir litir sem og háglans í silfur, gull og kopar. Einnig fást tvær stærðir af bollunum, 200 ml og 340 ml. Málin virðast kosta frá 3.700 krónum hérlendis og fást í Epal og Hrím sem dæmi. Því er hér tilvalin leið til að fara betur með umhverfið og vera smart í leiðinni.

Kopardólgar geta vel tryllst yfir þessum gullfallegu hlutum. Ferðamálið er …
Kopardólgar geta vel tryllst yfir þessum gullfallegu hlutum. Ferðamálið er auðvitað í stíl við kaffikönnuna og annað smart á heimilinu.
Bunan úr málunum er þægileg og jafnvel mestu subburnar ættu …
Bunan úr málunum er þægileg og jafnvel mestu subburnar ættu að geta drukkið nokkuð snyrtilega úr málinu. Stelton.com
Vínrauði liturinn hefur selst eins og heitar lummur.
Vínrauði liturinn hefur selst eins og heitar lummur. Stelton.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert