Egill fékk hina fullkomnu afmælisgjöf

Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins á afmæli í dag.
Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins á afmæli í dag. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Þórhildur Garðarsdóttir eiginkona Egils Arnars Jóhannessonar útgefanda sló heldur betur í gegn í dag með sérsmíðaðri afmælisgjöf sem hún færði bóndanum. Egill er mikill nautnaseggur og kann vel að meta lystisemdir lífsins eins og gott rauðvín og góða bók. Hann les gjarnan handrit og bækur á iPad svo nú getur hann sameinað ástríður sínar lestur, bað og léttvín þökk sé eiginkonunni.

Það rúmast tvö glös á brettinu svo Egill þarf ekki …
Það rúmast tvö glös á brettinu svo Egill þarf ekki að verða þyrstur í bráð. Þórhildur G/mbl.is

Ég sá þetta bara á Pinterest og ákvað að teikna brettið eins og ég vildi hafa það," segir Þórhildur en hún er mjög hugmyndarík og lætur fátt stoppa sig í að gera hugmyndirnar að veruleika. „Ég fékk svo hann Finn Númason sem kennir smíði í Hagaskóla til þess að skera þetta út fyrir mig. Svo lakkaði ég þetta bara nokkrar umferðir. Afraksturinn vakti gríðarlega gleði hjá eiginmanni sem finnst ekki leiðinlegt að liggja í baði," segir Þórhildur sem hugsaði fyrir öllu. Brettið lekkera rúmar bæði vínglas, kerti, bók eða iPad og jafnvel nokkra konfektmola. Algjör snilld! Nú er bara að vona að Þórhildur komi baðbrettinu í fjöldaframleiðslu.

Þórhildur skissaði upp herlegheitin.
Þórhildur skissaði upp herlegheitin. Þórhildur G/mbl.is
Stórfjölskyldan Þórhildur, Egill, börn þeirra og Jóhann Páll Valdimarsson faðir …
Stórfjölskyldan Þórhildur, Egill, börn þeirra og Jóhann Páll Valdimarsson faðir Egils. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert