Spaghettí til að kveikja á kertum

Sniðug leið til að kveikja á kertum þar sem erfitt …
Sniðug leið til að kveikja á kertum þar sem erfitt er að ná í kveikinn. Ladyland.com

Þetta húsráð hefur oft komið sér vel á mínu heimili ef ekki eru til langar eldspýtur og kertin eru orðin ansi mikið notuð. Þá dugar ekki að nota hefðbundnar eldspýtur eða kveikjara til að ná í kveikinn. Oftast á ég til kveikjara með löngum hálsi til að ná niður að kveiknum en ef slíkt er ekki til má vel redda sér með spaghettístrái. Þú einfaldlega kveikir í því og berð það að kveiknum. Þó skal fara að öllu með gát því það getur vel hrunið af framendanum eftir að kveikt hefur verið á honum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert