Malibu-margaríta sem fær þig til að gráta

Glæsilega ferskur og fínn.
Glæsilega ferskur og fínn. Liquor.com

Það er ekki oft sem að allir þínir draumar rætast í einum drykk en það er um það bil að fara að gerast. Ímyndaðu þér ananas og kókoshnetur, sólarströnd og huggulegheit. Hækkaðu upp í heimiliskyndingunni, skelltu þér í stuttbuxur og dragðu fram tekílaflöskuna.

Þessi útfærsla af margarítu er vandræðalega góð og sameinar ástina á malibu og margarítum í einum drykk. Hann er ekki flókinn og við mælum með honum.

  • 6 cl tekíla
  • 6 cl ananassafi
  • 3 cl kókosmjólk
  • 1-2 tsk. agave-síróp
  • safi úr ½ lime
  • slatti af klaka

Setjið öll hráefnin í kokteilhristara og hristið. Setjið klakann í glös og hellið drykknum yfir. Notið síuna sem fylgir með hristaranum eða bara sigti til að froðan sigtist frá.

Skreytið með kókosflögum og myntulaufi.

Njótið (á ábyrgan hátt).

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert