Súkkulaðihristingur til að byrja daginn

Grænmetishristingur dulbúinn sem súkkulaðibomba.
Grænmetishristingur dulbúinn sem súkkulaðibomba. lifdutilfulls.is/

Heilsumarkþjálfinn Júlía Magnúsdóttir mælir með þessum drykk fyrir þá sem vilja auka grænmetisinntöku og byrja morguninn með bragðmikilli og brjálæðislega hollri súkkulaðibombu.

1 bolli vatn eða heslihnetu- og möndlumjólkurblanda
Handfylli grænt salat (grænkál, lambhagasalat eða spínat)
1/4 gúrka
1 lítil pera með hýðinu
1/2 banani
2 msk. lífrænt kakóduft
1/2 tsk. möndlusmjör eða tahini (sesammauk)
2 msk. hemp-fræ
1 msk. bee pollen
2 msk. chia-fræ, lögð í bleyti (val)
4 dropar af stevia með súkkulaðibragði (frá via health stevia)
Klakar

Setjið innihaldsefni í blandara og hrærið, bætið klökum við undir lokin.

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi. www.lifdutilfulls.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert