Það er erfitt annað en að taka andköf af aðdáun þegar myndir úr þessu afmæli eru skoðaðar. Snillingurinn á bak við veisluna er engin önnur en Berglind Hreiðarsdóttir sem heldur úti vefsíðunni Gotterí og gersemar. Berglind er annálaður kökugerðarsnillingur og inn á síðunni hennar leynast uppskriftir og kökur sem vert er að skoða.
Veislan var haldin fyrir dóttur Berglindar, Elínu Heiðu, sem fagnaði átta ára afmæli sínu. Shopkins er í miklu uppáhaldi og því var ákveðið að hafa það þema. Berglind viðurkennir að hún hafi valið auðveldari útfærslur en oft áður þar sem hún sé gengin 34 vikur. Súkkulaðigosbrunnurinn kom sterkur inn en hann hafi verið inn í geymslu í mörg ár og hafi sannarlega slegið í gegn hjá krökkunum.
Við fengum að deila uppskriftunum með lesendum mbl.is og þökkum Berglindi kærlega fyrir.
Súkkulaðigosbrunnur og ávextir
Skerið ávextina niður í hæfilega stóra bita og raðið ásamt sykurpúðum á grillpinna. Ég gerði um 30 pinna og síðan fór restin af ávöxtunum í skálar og hver og einn gat búið til sinn uppáhaldspinna og dýft í súkkulaðið.
Bræðið súkkulaðið í tvennu lagi í örbylgjuofninum á næsthæsta hita í um það bil 30 sekúndur í senn og hrærið vel á milli. Þegar súkkulaðið er bráðið er matarolíunni blandað saman við og hitað einu sinni til viðbótar. Súkkulaðiblöndunni er síðan hellt í skálina á gosbrunninum og kveikt á, blandan á að vera orðin það vel út þynnt að hún rennur fallega niður brunninn. Ef þið eigið ekki súkkulaðigosbrunn má vel notast við Fondue skálar eða hreinlega bara bræða súkkulaði og hella í venjulega skál, það er merkilegt hvað slíkt stendur lengi án þess að storkna. Ef það fer síðan að storkna má bara setja það örstutt aftur í örbylgjuofninn og aftur á borðið.
Rice Krispies kökur
Hitið smjör, sýróp og suðusúkkulaði saman í potti við miðlungsháan hita og leyfið blöndunni að bubbla aðeins í lokin og takið síðan af hellunni. Bætið þá Rice Krispies saman við í litlum skömmtum. Setjið minna en meira í einu og hrærið vel á milli. Mér finnst best að hafa vel af súkkulaðiblöndu svo kökurnar verði svona frekar klístraðar og „djúsí“ en hægt er að drýgja blönduna betur með smá meira Rice Krispies fyrir þá sem vilja. Setjið í pappaform sem ykkur þykja falleg (hægt að nota bæði lítil og stór) og síðan er hægt að stinga fána eða öðru skrauti í hverja köku.
Cupcake Queen Shopkins afmælisterta
Kökumix hrært samkvæmt leiðbeiningum og hellt í vel smurt risa bollakökuform. Ef þið eigið ekki slíkt er hægt að gera nokkra botna, setja krem á milli og skera út. Ég var síðan með pappaspjald sem sat á grillpinnum á milli hæða til að auðveldara væri að skera kökuna.
Smjörkrem (á þessa köku gerði ég 3 x neðangreinda uppskrift)
Blandið öllum hráefnum saman í hrærivélarskálinni þar til slétt og fellt. Skiptið kreminu niður og litið (um 1/3 gulur og 2/3 blár).
Grunnið kökuna fyrst með þunnu lagi af kremi til að binda alla kökumylsnu. Smyrjið þá aftur þykkara lagi á neðri hlutann og sléttið eins og hægt er. Fyrir efri hlutann notaðist ég við stóran hringlaga stút (c.a 3 cm í þvermál) og sprautaði upp í spíral. Áður en efri hlutinn storknaði stráði ég svo kökuskrauti og sykurperlum hér og þar.
Sykurmassaskraut
Blandið smá klípu af gumpaste saman við bæði svartan og bleikan matarlit. Rúllið út og stingið út augu, mótið augnhár, nef, munn, augabrúnir og raðið saman. Fæturna fremst bjó ég til úr bleiku gumpaste og skreytti með kökuskrauti. Kórónuna stakk ég út með hvítu gumpaste og spreyaði með gylltum lit, stráði gylltu glimmeri yfir áður en það þornaði og stakk sykurperlum í hér og þar. Hendurnar mótaði ég með hvítu gumpaste og smurði síðan gulu smjörkremi yfir.
Poppy Popcorn Shopkins afmælisterta
Kökumix hrært samkvæmt leiðbeiningum og hellt í „Barbie“ bökunarform. Skreytt með smjörkremi í rauðu, bláu og hvítu eftir að dúkkunni hefur verið stungið í kökuna miðja. Fyrst er smurt þunnu lagi af kremi á kökuna og síðan sprautaðar stjörnur með 1M stút frá Wilton og sykurperlum stungið í hér og þar.
Peppa Mint Shopkins afmælisterta
Kakan
Sleikjókúla
Melónan holuð að innan (ég bjó til melónukúlur fyrir súkkulaðigosbrunnin úr því) og álpappír settur yfir hana alla. Sleikjópinnum og hjartapinnum stungið í kúluna.
Bollakökur
Bollakökur bakaðar, smurðar með smörkremi, skreyttar með Smarties/Skittles/M&M og priki stungið í miðjuna.
Hjúpaðir sykurpúðar
Stingið pappapriki í sykurpúðana svo þeir verði vel fastir. Bræðið Candy Melts og dýfið hálfa leið upp sykurpúðann, skreytið með kökuskrauti og Smarties og leyfið að storkna.