Eina Moscow Mule-uppskriftin sem þú þarft

Við munum gefa fjóra svona hamraða koparbolla í dag. Bollarnir …
Við munum gefa fjóra svona hamraða koparbolla í dag. Bollarnir halda drykknum köldum extra lengi. mbl.is/TM

Það elska flestir Moscow Mule-kokteilinn sem mokselst á börum bæjarins og um allan heim og hefur gert lengi. Hefðinni samkvæmt skal drekka Moscow Mule úr þar til gerðum koparbollum sem þykja fremur smart en hefðbundin uppskrift að drykknum kallar á vodka og engiferbjór.

Hann er fremur einfaldur í gerð og passið ykkur að hrista hann alls ekki þar sem það er gos í bjórnum.

Uppskrift

  • Klakar
  • 6 cl vodki
  • 1 tsk. ferskur lime-safi
  • 12 cl kaldur engiferbjór
  • 1 lime-sneið

Aðferð

Setjið klaka í glas. Hellið vodkanum í glasið, því næst lime-safanum, loks engiferbjórnum og blandið saman. Skreytið með lime sneiðinni. Njótið!

Skál!
Skál! Mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert