Bláberjahjónabandssæla að hætti Alberts

„Bláberjahjónabandssæla. Ætli megi ekki segja að þetta sé hliðarútgáfa af hjónabandssælunni góðu. Það má baka þessa hvort heldur er í kringlóttu formi eða í ofnskúffu eins og venjulega hjónabandssælu. Mjög góð með kaffinu, bökum og höfum kvöldkaffi eða bjóðum gestum heim,“ segir Albert Eiríksson í nýrri færslu á blogginu sínu. 

botn

150 gr. smjörlíki
1 b. heilhveiti
1 b. haframjöl
1/3 b. sykur
1/3 b. púðursykur
1/2 tsk. salt
1/3 tsk. matarsódi

Blandið öllu saman og setið í botninn á eldföstu kringlóttu formi. Takið frá ca 1/3 b. til að mylja yfir fyllinguna.

fylling

3 msk. bláberjasulta
2 b. frosin bláber
2 1/2 msk. sítrónusafi
2 msk. hunang

Dreifið bláberjasultunni yfir botninn. Hellið sítrónusafa yfir bláberin og látið þau yfir sultuna í botninum. Hellið hunangi yfir og myljið loks restina af deiginu milli fingranna yfir. Bakið við 175C í um 25 mín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert