Nýju Kitchen Aid-litirnir eru klikkaðir

Þessi litapalletta er ofboðslega falleg.
Þessi litapalletta er ofboðslega falleg.

Það er alltaf ákveðin tilhlökkun þegar Kitchen Aid kynnir nýjustu litina. Í ár klikka þeir ekki (frekar en fyrri daginn) og verður að segjast að litapallettan er með því fallegra sem við höfum séð. Því skal haldið til haga að litaúrvalið spannar 86 liti og þessir nýjustu eru sannarlega falleg viðbót.

Um fjóra liti er að ræða: Milkshake, Ink Blue, Avocado Cream og Black Violet. Þeir eru allir hver öðrum fallegri og munu væntanlega slá í gegn.

Djúpfjólublái liturinn er ákaflega fallegur.
Djúpfjólublái liturinn er ákaflega fallegur. mbl.is/thekitchn.com
Miða við vinsældir avókadóávaxtarins er í raun ótrúlegt að ekki …
Miða við vinsældir avókadóávaxtarins er í raun ótrúlegt að ekki hafi verið komin hrærivél í þessum lit áður. mbl.is/thekitchn.com
Þessi undurfagri litur heitir Milkshake. Hann er mjúkur og fallegur …
Þessi undurfagri litur heitir Milkshake. Hann er mjúkur og fallegur – og passar við allt. Ljósmynd / The Kitchn
Þessi dökkbláa vél á eftir að setja allt á hliðina …
Þessi dökkbláa vél á eftir að setja allt á hliðina enda er dökkblár heitasti litur ársins ef marka má sérfræðingana. Ljósmynd / The Kitchn


Að sögn innflutningsaðila Kitchen Aid á Íslandi er ekki enn vitað hvort nýju litirnir verði fáanlegir fyrir Evrópumarkað en hins vegar sé loksins kominn einn heitasti litur seinni ára við mikla gleði Kitchen Aid-aðdáenda. Við erum að sjálfsögðu að tala um brons eða koparlitinn sem er allt að trylla og þessi vél er klárlega með því fallegra sem við höfum séð.

Vélin kostar 109.990 krónur og fæst hjá Einari Farestveit sem jafnframt er umboðsaðili Kitchen Aid á Íslandi.

Það hefur verið löng bið eftir þessari elsku en hún …
Það hefur verið löng bið eftir þessari elsku en hún er loksins lent. Ljósmynd / KitchenAid
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert