Þetta borða Beyonce, Gisele og Madonna

Beyonce hugar vel að mataræði sínu.
Beyonce hugar vel að mataræði sínu. mbl.is/ brlmuzik.

Þessar konur eiga það allar sameiginlegt að vera í störfum sem krefjast mikils af þeim. Það er því nokkuð ljóst að mataræðið skiptir miklu máli máli og okkur lék því forvitni á því að vita hvað þessar eðalkonur eru að leggja sér til munns.

Beyonce ásamt eiginmanni sínum, Jay Z. Ekki fylgir sögunni hvort …
Beyonce ásamt eiginmanni sínum, Jay Z. Ekki fylgir sögunni hvort hann sé í 22 daga vegan-kúrnum. EMMANUEL DUNAND


Beyonce. Mataræði hennar er svokallað 22 daga mataræði. Hún hættir reglulega að borða dýraafurðir og þegar hún er undir hvað mestu álagi borðar hún einungis vegan til þess að halda sem bestri einbeitingu og líða sem best líkamlega. Fyrir þá sem vilja kynna sér 22 daga prógrammið hennar er hægt að nálgast upplýsingar um það hér.

Madonna er alltaf í frábæru formi.
Madonna er alltaf í frábæru formi. AFP

Gisele. Starfs síns vegna þarf hún að vera í toppformi og borða afskaplega hollan mat. Svo skemmtilega vill til að eiginmaður hennar, Tom Brady, er íþróttamaður mikill og þarf einnig að huga vel að mataræðinu. Hjónin eru með sinn einkakokk og ferðast hann með þeim hvert sem þau fara. Í mataræði þeirra er hvítt hveiti bannað og borðsalt, auk þess sem kartöflur, eggaldin og tómatar er bannað þar sem kokkurinn þeirra fullyrðir að þessar fæðutegundir séu bólguvaldandi.

Tom Brady og Gisele Bundchen.
Tom Brady og Gisele Bundchen. Skjáskot Daily Mail

Madonna. Drottningin er alltaf í toppformi og hugar vel að mataræði sínu. Hún borðar hvorki hveiti, egg, kjöt né mjólkurafurðir. Hún er mjög hrifin af sjávargrænmeti og borðar það af mikilli einurð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert