Saltkaramellupáskaeggið að gera allt vitlaust

Þetta eru glæsiegg.
Þetta eru glæsiegg.

Það er líf og fjör í vöruþróunardeild súkkulaðiframleiðenda um þessar mundir og þó nokkrar nýjungar í boði fyrir súkkulaðiþyrstan landann sem lætur sig dreyma um egg af öllum stærðum og gerðum.

Saltkaramellueggið sem er að gera allt vitlaust.
Saltkaramellueggið sem er að gera allt vitlaust.


Nói Síríus hefur sett á markað saltkaramelluegg og hafa viðtökurnar verið rosalegar enda kunna landsmenn að meta sína saltkarmellu. Góa er líka að koma sterk inn með piparfyllt lakkrísegg og getum við hér á matarvefnum ekki annað en glaðst yfir viðleitni framleiðenda til að uppfylla allar okkar óskir.

Fyllt piparegg frá Góu.
Fyllt piparegg frá Góu.

Nói Síríus býður jafnframt upp á vegan-egg og má búast við að það gleðji marga enda fjölgar veganistum hratt um þessar mundir.

Það eru því spennandi páskar í vændum svo ekki sé meira sagt.

Vegan-eggið góða.
Vegan-eggið góða.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert