Stjörnueldhús fyrir 200 milljónir

Eldhúsið er glæsilegt eins og sjá má.
Eldhúsið er glæsilegt eins og sjá má. Ljósmynd / StreetEasy

Nú býðst eldhúsáhugafólki það einstaka tækifæri að fjárfesta í eldhúsi eins frægasta sjónvarpskokks Bandaríkjanna – sjálfrar Inu Garten.

Fyrir þá sem þekkja ekki Garten gengur hún undir nafninu The Barefoot Contessa – eða berfætta greifynjan og þannig hefur hún eldað sig í gegnum lífið og vakið aðdáun hvar sem hún fer.

Nú er hún að selja íbúð sína í New York og er söluverðið rétt rúmar 200 milljónir sem er bara eins og sæmileg hæð í Skuggahverfinu. Eldhúsið er að sjálfsögðu til háborinnar fyrirmyndar og næsta ljóst er að einhverja klæjar verulega að fá að standa í sporum greifynjunnar og elda í eldhúsinu hennar.

Hér er hægt að skoða eignina nánar.

Ina kann að skera kalkún enda mikill meistari í eldhúsinu.
Ina kann að skera kalkún enda mikill meistari í eldhúsinu. Pinterest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert