Ósmekklegasta eldhúsálhald allra tíma?

Við erum frekar hrifin af frumlegheitum og þegar fólk leikur sér með hráefnið en það verður að viðurkennast að við erum ekki alveg viss um hvort þetta er fyndið eða ógeðslegt.

Sjálfsagt er það hvort tveggja... bara misjafnt hvað fólki finnst og hvar kímnigáfan liggur á litrófinu. Hinir sótsvörtu skella sjálfsagt upp úr og geta ekki beðið eftir að panta sér svona græju.

Fyrir þá sem ekki fatta er þetta eggjaskiljari. Einföld uppfinning sem skilur eggjarauðuna frá. Þessi framleiðandi tók þetta bara skrefinu lengra og gerði ferlið allt mun myndrænna.

En við gefum þeim stóra stjörnu fyrir frumlegheit.

Græjan heitir Hornösin og hana er að nálgast hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert