Líklega besti og fljótlegasti hafragrauturinn

Það má vel nota spíraða hafra eða tröllahafra í þessa …
Það má vel nota spíraða hafra eða tröllahafra í þessa uppskrift. /mbl.is

Ég kom við á heilsustaðnum Happ um daginn og greip með mér kaldan hafragraut úr kælinum til að borða í morgunmat. Það er ekki í frásögu færandi nema að því leyti að grauturinn var algjörlega dásamlegur. Saðsamur, trefjaríkur, örlítið sætur, með vott af hnetukeim og safaríkum eplabitum og kanil. Algjör bomba fyrir þreytta konu með tóman maga. Ég heyrði í Lukku sem sendi mér leiðbeiningar og nú hef ég fullkomnað mína eigin útgáfu af grautnum góða.  

Það þarf ekkert að ræða um gildi hafragrautar sem morgunverðar, það er vitað mál að hann stendur með manni fram undir hádegi og kemur í veg fyrir að hungrið blossi upp klukkutíma eftir morgunverð. Eins og við greindum nýlega frá sýndi áhugaverð könnun blaðakonunnar Leah Wynalek að hafragrautur er líklega með betri morgunverðarmöguleikum. Leah ákvað að kanna hvaða áhrif dag­leg neysla hafra­graut­ar hefði á hana og að mánuði lokn­um dró hún niður­stöðurn­ar sam­an í mjög áhuga­verðan lista.

Svellkaldur og stórgóður hafragrautur 

1,5 dl hafrar 
3 dl mjólk  ég nota sykurlausa hrís- og möndlumjólk sem er náttúrulega sæt
1/2 lítið lífrænt sætt epli, skorið í teninga 
1/2 tsk. kanill
Salt á hnífsoddi 
2-3 dropar vanillustevía eða önnur sæta. Mætti jafnvel nota eplamús eða bara sleppa sætunni.
4-5 valhnetur, möndlur eða pekanhnetur, saxaðar gróft
1 tsk. hörfræ
Nokkrar rúsínur ef vill 

Setjið allt gúmmelaðið í krukku, hristið og geymið í kæli yfir nótt. Stundum geri ég graut fyrir 2 daga í einu. Eplin halda sér merkilega vel.

Kaldur grautur er algjör negla í morgunsárið.
Kaldur grautur er algjör negla í morgunsárið. mbl.is/happ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert