Uppáhaldskökuuppskriftir eldhússystra

Ostaköku-brownie fyrir bakstur.
Ostaköku-brownie fyrir bakstur. eldhussystur.is

Þær kalla sig eldhússystur og segjast bakstursóðar, systurnar Tobba og Stína úr Skagafirði. Til að leyfa almenningi að njóta hæfileika þeirra í eldhúsinu stofnuðu þær bloggsíðuna eldhussystur.com. Hér deila þær nokkrum uppáhaldsuppskriftum með lesendum. 

Þorbjörg og Kristín Snorradætur hafa lengi haft áhuga á matargerð og enn meiri áhuga á bakstri. Móðir þeirra átti stílabækur fullar af handskrifuðum uppskriftum og var dugleg að leyfa systrunum að vera með í eldhúsinu. Eins var móðuramma þeirra dugleg að baka með þeim systrum. „Við eigum mjög mikið af minningum úr eldhúsinu hjá mömmu og hjá ömmu á Selfossi,“ segir Þorbjörg.

Rafræn uppskriftabók

Blogg systranna fór í loftið þegar þær ákváðu að þær þyrftu að halda betur utan um uppskriftir sem þær söfnuðu, prófuðu og endurbættu. „Við vildum í raun gera rafræna uppskriftabók. Við höfum báðar verið duglegar að elda og baka og prófa nýja hluti og maður á það til að týna uppskriftum. Þannig að í staðinn fyrir að vera með handskrifaðar bækur vildum við hafa þetta þarna. Eiginlega meira fyrir okkur, en nú eru fimm hundruð manns sem kíkja á síðuna á venjulegum degi,“ segir Þorbjörg.

Er sjúklega íhaldssöm

Bakstur er í uppáhaldi hjá þeim systrum. „Systir mín er kannski meira í matargerð og henni finnst mjög gaman að prófa nýja hluti en ég er sjúklega íhaldssöm. Það þarf mjög oft að fylgja uppskriftum og ég vil helst ekki breyta neinu. En í seinni tíð er ég að lagast aðeins og meira til í að breyta smávegis,“ segir Þorbjörg.

Þær systur deila með lesendum þremur frekar auðveldum uppskriftum að dásamlegum kökum. „Ég hef oft fengið að heyra hvað fólki finnst sítrónukladdakakan góð. Og hún er svo auðveld.“

Ostaköku-undrið eftir bakstur.
Ostaköku-undrið eftir bakstur. eldhussystur.is
Ostaköku-brownie með hindberjum

Brownie-deig
225 g smjör
4 egg
4 dl sykur
1,5 dl hveiti
¼ tsk. salt
2 dl kakó
½ tsk. vanilludropar 

Ostakökudeig
300 g rjómaostur
½ dl sykur
1 egg
4 msk. hveiti
200 g fersk eða fryst hindber 

Brownie-deig – aðferð
Stillið ofninn á 175°C. Smyrjið ofnfast form, ca 24×32 cm stórt. Bræðið smjörið. Þeytið egg og sykur þar til létt og ljóst. Í annarri skál, blandið saman hveiti, salti, kakó og vanillu. Bætið smjörinu út í eggjablönduna og þeytið þar til slétt og fínt.

Sigtið hveitiblönduna út í og blandið saman þar til deigið er orðið slétt, ekki hræra of mikið. Hellið deiginu í ofnfasta formið.

Ostakökudeig – aðferð
Þeytið saman rjómaost, sykur, egg og hveiti í skál. Setjið doppur af ostakökudeiginu á brownie-deigið.

Takið svo gaffal og dragið í gegnum bæði ostaköku- og brownie-deigið, til að dreifa vel úr ostakökunni. Stráið hindberjunum yfir deigið. Bakið í ca. 45 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn úr kökunni. Látið kökuna kólna alveg áður en þið berið hana fram.
Sítrónukladdakaka er klassík sem margir elska.
Sítrónukladdakaka er klassík sem margir elska. eldhussystur.is

Eplakaka með marsipani og pekanhnetum

150 g smjör
1,5 dl sykur
3 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
1,5 dl mjólk
150 g marsipan
4 epli (u.þ.b.)
kanilsykur (að vild)
pekanhnetur (að vild, má líka nota valhnetur)
perlusykur (að vild)

Bræðið smjörið í potti. Blandið sykrinum út í og látið kólna aðeins. Bætið hveiti, lyftidufti og mjólk út í og hrærið. Rífið marsípanið með rifjárni og blandið út í deigið. Afhýðið eplin og skerið í þunnar sneiðar.

Smyrjið smelluform og hellið deiginu í það. Setjið eplasneiðarnar þvert ofan í deigið. Stráið kanilsykri yfir kökuna og stráið að lokum pekanhnetum og perlusykri yfir.

Bakið við 175°C í 45 – 50 mínútur eða þar til kakan er tilbúin.

Eplabaka er ávísun á gott spjall.
Eplabaka er ávísun á gott spjall. eldhussystur.is

Sítrónukladdakaka 
Ca. 12 bitar 

1 sítróna
150 g smjör
3 egg
3 dl sykur
2 tsk. vanillusykur
2,5 dl hveiti
flórsykur til skrauts 

Stillið ofninn á 175°C. 
Þvoið sítrónuna (ekki verra að kaupa lífrænar sítrónur, sérstaklega þegar á að nota börkinn). Fínrífið börkinn af sítrónunni og pressið út 1-2 msk. af safanum.

Bræðið smjörið í potti. Takið pottinn af hitanum og blandið öllum hráefnunum út í, ásamt sítrónuberkinum og 1-2 msk. af safanum.

Smyrjið smelluform með smjöri og stráið jafnvel brauðmylsnu eða kókosmjöli í það. Hellið deiginu í formið. Bakið kökuna mitt í ofninum í 18-25 mínútur.

Ég baka hana í nákvæmlega 20 mínútur og finnst kakan verða alveg fullkomin við það, aðeins bökuð í jöðrunum en klesst í miðjunni. Látið kökuna kólna alveg, stráið þá flórsykri á hana til skrauts og berið fram með þeyttum rjóma. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert