Æsingur á samfélagsmiðlum yfir kóríander

Viss gen í líkamanum valda því að bragðið sem kryddið …
Viss gen í líkamanum valda því að bragðið sem kryddið vekur er það sama og af sápu. mbl.is/

Það virðist ekki vera neitt grátt svæði er varðar kryddið kóríander. Fólk annað hvort hatar það eða elskar. Kóríander er mikið notað í ýmsa matargerð svo sem mexíkóska en viðist þó eiga undir stöðugu höggi að sækja.

Á facebook er að finna fjölda hópa gegn kryddinu bæði íslenska og erlenda. Fólk fer mikinn og æsir sig fljótt og örugglega yfir kryddinu. Sá stærsti I hate Coriander gengur svo langt að taka upp hatursmyndbönd þar sem kryddinu er tildæmis sturtað niður.

Hér sést félag kóríanderhatara láta til sín taka á kommentakerfi …
Hér sést félag kóríanderhatara láta til sín taka á kommentakerfi facebook. Skjáskot/facebook.com

Einnig er til hinn ýmiss varningur tileinkaður baráttunni gegn kóríander og jafnvel lítil vefverslun sem helgar sig umræddri baráttu og selur boli með áletruninni : Segðu nei við kóríander og Reyndu að bragðast ekki eins og sápa!

Það áhugaverða er að það er í raun líffræðileg ástæða fyrir því að sumum þykir kryddið bragðast eins og sápa á meðan aðrir elska það. Ástæðan fyrir kóríanderhatrinu er sum sé efnafræðileg um samkvæmt SciShow.com, en það eru um 4-14% heimsins kóríanderhatarar af líffræðilegum ástæðum. Viss gen í líkamanum valda því að bragðið sem kryddið vekur er það sama og af sápu. Þar hafi þið það - kóríanderhatarar eru í raun líffræðilega öðruvísi!

 

Þessi bolur hefur selst vel enda gott grín.
Þessi bolur hefur selst vel enda gott grín. mbl.is/yoprnt.com
Símahulstur kóríanderhatarans.
Símahulstur kóríanderhatarans. mbl.is/http://ihatecilantro.com
Kóríander er djöfullinn segir þessi bolur.
Kóríander er djöfullinn segir þessi bolur. mbl.is/http://ihatecilantro.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert