Steinunn Guðný Ágústsdóttir er mikill meistari. Hún notar gogg til þess að ákvarða hvað eigi að vera í matinn. Hugmyndin er ákaflega skemmtileg en allir í fjölskyldunni geta tekið þátt og skrifað sinn rétt í gogginn. Goggar eru einfaldir í gerð en í raun þarf ekkert annað en eitt blað og penna.
Fyrir þá sem ekki muna hvernig leikurinn virkar er hér útskýring:
Sá sem er goggurinn heldur á honum en sá sem fær að spila fyrir máltíð kvöldsins velur fyrst lit eða mynstur. Séu doppur sem dæmi fyrir valinu er „goggað“ D O P P U R = 6 sinnum. Svo er goggurinn opnaður og tala valin. T.d. 7. Þá er goggað 7 sinnum og opnað aftur. Því næst er tala valin og sú tala geymir hugmynd að kvöldverði á undirlaginu. Einfalt og skemmtilegt!