Forræktun í eldhúsglugganum

Steinunn segir tilvalið að nýta páskana í vorverkin.
Steinunn segir tilvalið að nýta páskana í vorverkin. RAX,Rax / Ragnar Axelsson

Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri í Garðheimum, segir skemmtilegt að sá fyrir sínum eigin sumarblómum og oft borgi sig að forrækta þau inni. Byrja í febrúar í eldhúsinu, venja plönturnar svo við með því að flytja þær í vermibeð og þaðan út í garð í maí eða byrjun júní.

„Gróðurinn kemur vel undan vetri, eins og búast mátti við eftir óvenju milt veður, og nú fer að verða tímabært að hefja vorverkin,“ segir Steinunn Reynisdóttir, deildarstjóri garðyrkjudeildar Garðheima. „Reyndar er alltaf spurning hvernig aprílmánuður verður og hvort von er á páskahreti með næturfrosti, en sem betur fer er gróðurinn ekki kominn almennilega af stað, þökk sé snjónum sem færði hér allt á kaf í lok febrúar og stoppaði plönturnar af.

Það þarf að gæta þess að hefja vorverkin ekki of fljótt og best er að bíða með sumt fram yfir páska, eins og til dæmis að hreinsa beðin. Aftur á móti er tilvalið að ráðast í stórframkvæmdir á trjám, en besti tíminn til að saga stórar greinar af blæðurum, svo sem birki og hlyn, er frá janúar og fram í lok mars þegar trén eru enn í dvala. Ef það næst ekki er skynsamlegt að hlífa þessum trjátegundum á meðan safastreymið er sem mest og bíða með að saga greinar þangað til eftir laufgun, í lok maí eða byrjun júní.“

Grænmetisræktun er skemmtileg búbót.
Grænmetisræktun er skemmtileg búbót. RAX,Rax / Ragnar Axelsson

Glímt við mosa

Þannig að nú er brátt óhætt að hreinsa öll beð, vel og vandlega?

„Lauf, mosi og greinar skýla plöntunum yfir veturinn og það er mikilvægt að leyfa því að liggja fram á vor. Núna, þegar frost er að fara úr jörðu, er hægt að fara grófa yfirferð yfir beðin, en ráðlegt er að hlífa viðkvæmari tegundum þangað til ekki er lengur hætta á næturfrosti, til aprílloka eða fram í byrjun maí.“

Hvenær má ráðast í mosann?

„Um miðjan apríl er gott að snúa sér að mosanum, hjá mörgum garðeigendum er það fyrsta vorverkið að ráðast á grasflötina og þann mosa sem hefur myndast yfir veturinn. Mosi þrífst best í skugga og getur dafnað við mun lægra hitastig en gras; því á hann auðvelt með að ná yfirhöndinni yfir köldu mánuðina. Í vetur hafa verið kjöraðstæður fyrir mosann, óvenju hlýtt og blautt, og því gæti stefnt í mikið mosavor.

Þegar frost er að fara úr jörðu er mosinn oft mjög lausgróinn og hægt að fjarlægja hann á auðveldan hátt með garðhrífu. Að því loknu er gott að stinga aðeins í flötina með gaffli til að loft, kalk og áburður eigi greiðari leið niður í jarðveginn. Því næst er gott að dreifa kalki á flötina, ég mæli með Túrbókalki frá Áburðarverksmiðjunni. Að viku liðinni er tímabært að bera áburð á flötina, annaðhvort tilbúinn áburð eins og Blákorn eða lífrænan, til dæmis þörungamjöl eða búfjáráburð. Nauðsynlegt er að dreifa vel úr áburðinum, þannig að áburður eða kalk sitji ekki eftir í hrúgum á flötinni, en við það brennur hún og ljótir gulbrúnir flekkir myndast. Í lok maí eða byrjun júní er síðan tilvalið að strá grasfræi yfir flötina til að þétta hana og fylla upp í sárin sem mosinn skilur eftir sig.“

Lífrænn áburður

Er líka gott að setja reglulega áburð í öll beð?

„Já, meginreglan er að gefa áburð einu sinni í mánuði í maí, júní og júlí. Það á sama við um beðin og grasflötina og gott að gefa hvort heldur er tilbúinn áburð eða lífrænan búfjáráburð.“

Hvenær er tímabært að klippa limgerði?

„Snemma á vorin, í apríl og fram í maí, áður en þau fara að laufgast. Góð regla er að að klippa limgerðið í svokallað A-form, þannig að það sé sverast neðst, næst jörðu, og mjókki eftir því sem ofar dregur. Með því móti kemst sólin að öllum greinum og limgerðið þrífst vel.“

Hvað með rósir?

„Það er óhætt að klippa núna í apríl harðgerðari rósategundir, svo sem hansarós, fjallarós, þyrnirós og hjónarós. Best er að bíða fram í maí með viðkvæmari tegundir; aðrar eðalrósir sem fólk er með upp við hús. Góð regla er að fjarlægja þykkar greinar í miðju rósarinnar, svokallaða myrkrasprota, en halda eftir fínni greinum því á þær koma rósarblómin.“

Vinsælir vorlaukar

Forræktun á grænmeti og kartöflum, hvenær hefst hún?

„Gott er að huga að forræktun á grænmeti núna, í byrjun apríl, og í Garðheimum erum við með mikið úrval af grænmetisfræjum. Kartöfluútsæði þarf að láta spíra áður en því er plantað. Heppilegast er að láta kartöflur spíra í birtu en ekki miklum hita og bílskúr með glugga er til dæmis upplagður til þess.“

Tími vorlaukanna er væntanlega líka runninn upp?

„Flestir vorlaukar blómstra síðsumars og því er forræktun nauðsynleg, til að tryggja blómstur fyrir fyrstu haustfrost. Meðal vinsælla tegunda eru anemónur, dalíur, begóníur, gladíólur og liljur. Best er að byrja með forræktun í eldhúsglugganum en færa laukana svo yfir í kaldara rými, svo sem í bílskúrinn þar sem nýtur dagsbirtu og hægt er að lofta vel.

Það er líka skemmtilegt að sá fyrir sínum eigin sumarblómum og oft borgar sig að forrækta þau inni. Byrja í febrúar í eldhúsglugganum, venja plönturnar svo við með því að flytja þær í vermibeð og þaðan út í garð í maí eða byrjun júní. Reikna má með fjórum til átta vikum þar til hægt er að planta til dæmis alísu, morgunfrú og flauelsblómi út á vaxtarstað. Aðrar plöntur þurfa lengri tíma, svo sem stjúpur, silfurkambur og petúnía.“

Aspirnar felldar

Er mikilvægt að nota réttu verkfærin í garðavinnunni, sérstaklega þegar um stærri verk er að ræða, til dæmis trjáklippingar?

„Já, það er lykilatriði og í Garðheimum bjóðum við upp á vönduð verkfæri og tól, allt frá litlum handklippum upp í stór tæki og keðjusagir. Hjá okkur er breitt vöruúrval og verkfæri sem henta bæði garðeigendum og stórum garðverktökum.“

Trjáfellingar – er öspin enn víða til vandræða í húsagörðum?

„Aspir þóttu eitt sinn góðar plöntur í garða en nú eru þær einmitt víða frekar til ama. Þær skyggja á annan gróður, skjóta rótum um allt og taka næringu frá öðrum plöntum. Þegar fella þarf stór tré í görðum er nauðsynlegt að úthugsa verkið áður en hafist er handa svo ekki hljótist tjón af. Það þarf að finna út hvert tréð á að falla og saga stofninn með tilliti til þess; tryggja að tréð falli ekki á plöntur eða jafnvel hús eða bíl nágrannans. Fyrir þá sem ekki treysta sér í verkið er gott að leita til fagaðila.“

Meðal vinsælla tegunda eru anemónur, dalíur, begóníur, gladíólur og liljur. …
Meðal vinsælla tegunda eru anemónur, dalíur, begóníur, gladíólur og liljur. Best er að byrja með forræktun í eldhúsglugganum en færa laukana svo yfir í kaldara rými, svo sem í bílskúrinn þar sem nýtur dagsbirtu og hægt er að lofta vel. mbl.is/Rax
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert