Svavar Örn er engin subba

Svavar Örn Svavarsson er sælkeri af guðs náð.
Svavar Örn Svavarsson er sælkeri af guðs náð. Ernir Eyjólfsson

Svavar Örn Svavarsson, hárgreiðslumaður og útvarpsstjarna á K100, er mikið snyrtimenni í eldhúsinu. Hann laumaði góðum húsráðum að okkur um daginn.

Svavar setur alltaf uppþvottaburstann með í uppþvottavélina til að sótthreinsa hann.

Útvarpsmaðurinn knái kann einnig vel að meta beikon en þolir ekki fituslettur. Því eldar hann beikonið alltaf í eldföstu móti svo fitan spýtist ekki um allt við að steikja það á pönnu.

Lumar þú á húsráði? Sendu okkur línu á matur@mbl.is.

Svavar Örn og Svali (Sigvaldi Kaldalóns) halda úti vinsælum morgunþætti …
Svavar Örn og Svali (Sigvaldi Kaldalóns) halda úti vinsælum morgunþætti alla virka daga á K100.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert