Eldhús sem fær atvinnukokka til að gráta

Þetta eldhús slær flestu við.
Þetta eldhús slær flestu við. Ljósmynd/Mansion Global

Húsið sjálft er algjör perla og er staðsett í miðborg Parísar. Það er þó eldhúsið sem fékk okkur til að staldra við enda fáheyrt að svona glæsilegt eldhús sé inni á einkaheimili. Eldavélin er stórbrotin og myndi sóma sér vel á hvaða Michelin-veitingastað sem er. Þar er jafnframt margfaldur ofn, séstakur grillofn og vörulyfta. Ekki má heldur gleyma vínkjallaranum sem er sérlega glæsilegur svo að ekki sé meira sagt.

Húsið er metið á rúman milljarð króna og hægt er að nálgast það hér.

Þessi vínkjallari er einnig notaður sem búr.
Þessi vínkjallari er einnig notaður sem búr. Ljósmynd/Mansion Global
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert