Amy Shumer fór úr fáránlega litlu eldhúsi

Nýja eldhúsið er gullfallegt. Alsett ljósum marmara og stórum gluggum. …
Nýja eldhúsið er gullfallegt. Alsett ljósum marmara og stórum gluggum. Hægt er að ganga beint út á stórar svalir sem liggja í kringum íbúðina. mbl.is/bhsusa.com

Grínleikkonan Amy Schumer hefur búið í eins herbergis íbúð í New York um árabil en íbúðin hefur verið á sölu í fjölda mánaða án þess að nokkuð gerist. Fjölmiðlar vestanhafs vilja meina að fimm stigapallar og engin lyfta eða það að dýrahald sé bannað hafi sitt að segja auk þess sem verðið er nokkuð hátt. Við á matarvefnum höfum meiri áhyggjur af eldhúsinu sem er lítið og illa skipulagt auk þess sem Amy hefur lýst því yfir að hún sé brussa og elski stórar samlokur. Með það í huga er þetta eldhús allt of lítið!

Gamla eldhúsið var ekki upp á marga fiska.
Gamla eldhúsið var ekki upp á marga fiska. mbl.is/People.com
Lítið og krúttlegt en ekki vel skipulagt. Dáldið eins og …
Lítið og krúttlegt en ekki vel skipulagt. Dáldið eins og Amy sjálf. mbl.is/People.com


Amy sjálf fékk mjög alvarlega matareitrun í desember þar sem hún og kærastinn hennar Ben Hanisch voru að fagna árs afmæli í París – svo hún ætti í raun að elda meira heima! Amy starfaði sem þjónn á steikhúsi í eigu körfuboltastjörnunanr Michael Jordan á meðan hún harkaði í prufum áður en hún varð fræg svo hún kann vel til verka í kringum mat. Uppáhaldsuppskriftin hennar að Mac and cheese kemur einmitt af steikhúsinu en hana má nálgast hér.

Amy er þó ekki á flæðiskeri stödd. Áður en íbúðin gamla seldist hafði hún keypt sér nýja 5 herbergja penthouse-íbúð nálægt þeirri gömlu í New York og eldhúsið þar er upp á 10! Loks seldist þó litla íbúðina og Amy getur andað léttar í nýju Penthouse íbúðinni sinni. Skál fyrir því Amy!

Borðstofan er ákaflega falleg og björt. Hægt er að fara …
Borðstofan er ákaflega falleg og björt. Hægt er að fara út á svalir með fordrykkinn eða opna alveg út. mbl.is/bhsusa.com
Hér má vel henda í djúsí pasta eða samloku en …
Hér má vel henda í djúsí pasta eða samloku en Amy elskar Mac and cheese. mbl.is/bhsusa.com
Opið er á milli eldhúss, borðstofu og stofu. Enda er …
Opið er á milli eldhúss, borðstofu og stofu. Enda er Amy lítið fyrir leyndarmál og lætur allt flakka. mbl.is/bhsusa.com
Vaskurinn er stílhreinn og minímalískur eins og annað í húsinu.
Vaskurinn er stílhreinn og minímalískur eins og annað í húsinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert