Fjólublá eldhús eru nýjasta æðið

Hér fær fjólublá eyja að rífa upp stemminguna innan um …
Hér fær fjólublá eyja að rífa upp stemminguna innan um grá innréttingu og ljósan marmara. Það verður að segjast að án fjólublá litsins væri þetta nokkuð flatt. mbl.is/brushandtrowel.com

Fjólublár hefur verið í tísku undanfarin ár. Allt frá djúpum dökkum tónum yfir í gráfjólublátt. Nú virðist sem fjólublátt sé loks að ná inn í eldhús hjá fólki en síðustu misseri hefur grátt og hvítt verið allsráðandi og því kærkomið að sjá litagleðina. Hin hlýji pastalitaði fjólulitur með gráumtón virðist vera einna vinsælastur þó djúpur og dramatískur litur oft kenndu við eggaldin sjáist einnig á hugaðri heimilum. Fjólublái liturinn þykir tóna vel með gráu og ljósum marmara.

Það getur verið smart að mála hillu í sama lit …
Það getur verið smart að mála hillu í sama lit og vegginn. mbl.is/kitchensourcebook.co.uk
Að mála einn eða tvo stóla í björtum lit hressir …
Að mála einn eða tvo stóla í björtum lit hressir gírfuelga upp á rýmið. mbl.is/kitchensourcebook.co.uk

 Ikea innréttingarnar koma vel út í lilla-gráu.

Innréttingin er úr Ikea og marmarinn gefur henni voldugt yfirbragð.
Innréttingin er úr Ikea og marmarinn gefur henni voldugt yfirbragð. mbl.is/decorpad.com
Grá-lillabláir skáparnir gefa eldhúsinu hlýjan blæ.
Grá-lillabláir skáparnir gefa eldhúsinu hlýjan blæ. mbl.is/decorpad.com
Hér var gömul hvít innrétting úr Ikea sprautuð lillablá.
Hér var gömul hvít innrétting úr Ikea sprautuð lillablá. mbl.is/decorpad.com

Það má einnig lífga upp á eldhúsið með því að mála einn vegg í lit eða vera með litaðan skáp. Það er sniðugt að gera upp gamlan stofuskáp og mála hann í fallegum lit og færa hann inn í eldhús. 

Stakir skápðar í lit setja skemmtilegan svip á eldhúsið.
Stakir skápðar í lit setja skemmtilegan svip á eldhúsið. mbl.is/kitchenandresidentialdesign.com
Með svona skáp í eldhúsinu má jafnvel geyma sparistellið í …
Með svona skáp í eldhúsinu má jafnvel geyma sparistellið í eldhúsinu. mbl.is/faceyourspace.de



Fjólubláar flísar koma skemmtilega út.
Fjólubláar flísar koma skemmtilega út. mbl.is/pintrest
Hér gefur á að lýta vinsæla litapalletu en hún þykir …
Hér gefur á að lýta vinsæla litapalletu en hún þykir minna á tónana í hortensíu. mbl.is/www.design-seeds.com
Dekkri litir í ætt við eggaldin-lit þykja einnig smart en …
Dekkri litir í ætt við eggaldin-lit þykja einnig smart en þá nýtur ljós borðbúnaður sín betur. mbl.is/pintrest
Fjólublái liturinn gjörbreytir hér eldhúsinu sem væri annars ansi tilbreytingarlítið …
Fjólublái liturinn gjörbreytir hér eldhúsinu sem væri annars ansi tilbreytingarlítið og leiðinlegt. mbl.is/pintrest
Hér er einhver hugaður á ferð sem tekur litinn alla …
Hér er einhver hugaður á ferð sem tekur litinn alla leið. Háglansinn er þó helst til of mikill og speglar því. mbl.is/pintrest
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert