Hver elskar ekki smá léttleika þessa dagana, sérstaklega í ljósi nýafstaðins súkkulaðiáts og komandi sumars? Af því tilefni er kjörið að galdra fram þennan gómsæta kjúklingarétt sem er ákaflega suðrænn í sér og syndsamlega góður.
Grillaður hunangs- og límónukjúkingur með ananas-salsa
- Safi úr 4 sítrónum.
- 60 ml extra virgin ólífuolía
- 4 msk. saxað kóríander
- 2 msk. hunang
- sjávarsalt
- 450 gr. kjúklingabringur
- 2 bollar ananasbitar
- 1 avókadó, skorið í bita
- 1/4 rauður laukur, fremur smátt skorinn
- Ferskur svartur pipar
Aðferð:
- Byrjaðu á að laga kryddlöginn. Í stóra skál skaltu hræra saman safa úr þremur lime, ólífuolíunni, 3 msk. kóríander og hunangi. Kryddaðu með salti.
- Settu kjúklinginn í stóran ziploc-poka (rennilásapoka) og helltu marineringunni yfir. Geymdu í kæli í þrjá klukkutíma eða yfir nótt.
- Hitaðu grillpönnuna (eða alvöru grillið) á háan hita, smyrðu með olíu og grillaðu kjúklinginn í átta mínútur á hvorri hlið.
- Á meðan skaltu blanda saman í stóra skál ananas, avókadó, rauðlauknum og afganginum af lime-safanum og því sem eftir var af saxaða kóríanderinu. Kryddaðu með salti og pipar.
- Berið salsað fram með kjúklingnum og gleðilegt sumar!