47 ára en lítur út fyrir að vera 27

Jennifer Lopez
Jennifer Lopez Instagram/Jennifer Lopez

Lopez lifir mjög annasömu lífi en hún er þessi misserin með sýningu í Las Vegas, leikur í sjónvarpsþættinum Shades of Blue auk þess að vera dómari í dansþættinum World of Dance.

Hún segist vera sérlega passasöm með mataræðið og borðar ekki hvað sem er. Hún borði til dæmis aldrei unnar matvörur og hún reyni að hafa allt lífrænt. Dæmigerður hádegisverður hjá henni inniheldur lax eða annan fisk og svo gott salat. Grænmeti er í miklum metum hjá henni og hún reynir að borða það í hvert mál.

Á kvöldin fer hún yfir í kjöt og þá eru svínakjöt og kjúklingur efst á lista og þá oftar en ekki eldað að suður amerískum hætti.

Hún er jafnframt mikið á ferð og flugi en gætir þess vel að taka alltaf með sér hollt snarl eins og ávexti og grænmeti. Hún játar þó fúslega að veikleiki hennar séu súkkulaðibitar – hvort heldur sem er í smákökum eða ís.

Lopez eða J.Lo eins og hún er jafnan kölluð er einnig mjög duglega að hreyfa sig og breytir reglulega um áherslur í líkamsrækt. Hún er með tvo einkaþjálfara, annan í Los Angeles og hinn í New York og hafi þeir ólíkar áherslur sem henti henni mjög vel.

Það eru þó þrjár meginreglur sem hún fylgir sem hún segir að hafi mest með gott útlit sitt að gera. Hún reyki ekki, drekki ekki áfengi og neyti ekki koffíns. Það séu ófrávíkjanlegar reglur

Jennifer Lopez lítur ekki út fyrir að vera 47 ára …
Jennifer Lopez lítur ekki út fyrir að vera 47 ára gömul. Jamie McCarthy
Jennifer Lopez hugsar vel um líkama og sál.
Jennifer Lopez hugsar vel um líkama og sál. mbl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert