Jamie Oliver gerir brjálaðar bláberjapönnsur í blandara

Jamie Oliver er snillingur í að sameina næringarríkan hollan mat …
Jamie Oliver er snillingur í að sameina næringarríkan hollan mat og fljótlegar aðferðir.

Svona breytir þú smoothie - í pönnukökur! Þessi uppskrift er frá hinum dísæta og dásamlega Jamie Oliver úr bókinni Everyday Super Food.

Við á matarvefnum erum búin að sannreyna uppskriftina sem er mjög góð - sjá okkar myndir hér að neðan. Við læddum þó einni msk af sykurlausri bláberjasultu út í deigið þar sem fersku berin vorufrekar bragðlaus - afraksturinn var æðislega góður. Við notuðum kókosolíu til steikingar.

Stórgóðar pönnukökur. Matarvefurinn hefur sanntreynt það ítrekað og börnin hreinlega …
Stórgóðar pönnukökur. Matarvefurinn hefur sanntreynt það ítrekað og börnin hreinlega elska þær. Lauren Zaser / BuzzFeed

1 og 1/2 bolli fersk bláber
1 vel þroskaður banani 
3/4 bolli nýmjólk 
1 stórt egg
1 og 3/4 bolli heilhveiti
1/4 tsk salt
2 tsk matarsódi
Olía til steikingar 

Til að toppa með:
Grísk jógúrt 
Ristaðar hnetur
Kanil
fersk ber
hunang 

Aðferð
Setjið helminginn af bláberjunum, eggið, afhýdda banana, hveiti, mjólk, matarsóda og salt í blandara og blandið vel. Deigið er nokkuð þykkt og verður dásamlega „flöffí" við bakstur.

Setjið deigið í skál og hrærið varlega saman við restinni af fersku berjunum.

Setjið olíu á pönnu og steikið pönnukökurnar uns gylltar eða 2-3 mínútur á hvorri hlið. 

Það er smart að búa til pönnukökuköku og bera fram …
Það er smart að búa til pönnukökuköku og bera fram í bröns-boðum. Lauren Zaser / BuzzFeed
Jamie notar Vitamix blandara og hræri pönnukökurnar á sekúndum
Jamie notar Vitamix blandara og hræri pönnukökurnar á sekúndum Lauren Zaser / BuzzFeed
Hrærið varlega eftir að fersku berin eru komin út í.
Hrærið varlega eftir að fersku berin eru komin út í. Lauren Zaser / BuzzFeed
Við mælum með að nota kókosolíu til steikingar.
Við mælum með að nota kókosolíu til steikingar. Lauren Zaser / BuzzFeed
Matarvefurinn hefur borðað ansi margar svona pönnukökur. Það er snilld …
Matarvefurinn hefur borðað ansi margar svona pönnukökur. Það er snilld að frysta þær eða geyma í kæli og setja svo í ristavélina. mbl.is/Tobba Marinós
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert