Sjaldan lýgur Pinterest segir orðatiltækið og það hefur reynst ansi rétt enda þykir Pinterest hafa ótrúlegt forspárgildi um heitustu strauma og stefnur.
Á dögunum sendi Pinterest frá sér lista yfir það sem spáð er mestum vinsældum í eldhúsum árið 2017. Listinn er fjölbreyttur og mjög svo í takt við tíðarandann og það sem við höfum verið að sjá á vefnum.
En hér eru þau – heitustu eldhústrendin 2017 að mati Pinterest:
Hillubarir þykja ákaflega sniðugir, sérstaklega í litlum rýmum. Þeir koma sérlega vel út og njóta sífellt meiri vinsælda. Við elskum litlu kampavínsflöskurnar og slaufurnar á hálsinum á þeim.
Ljósmynd/Pinterest
Krítartöflur og kósí kaffistemning eins og er hér á þessari mynd. Þetta þykir afskaplega flott og við erum sammála. Ef þið fáið ykkur krítartöflu sem þessa – sem er fremur einföld framkvæmd þar sem hægt er að nota krítarmálningu og ramma hreinlega inn veggflöt – þá ráðleggjum við ykkur að kaupa sérstaka krítarpenna í stað hefðbundinnar krítar.
Ljósmynd/Pinterest
Steypujárnið er vinsælt.
Ljósmynd/Pinterest
Vel skipulagðir búrskápar eru það sem koma skal. Sérmerktar krukkur og annað álíka fínerí er það heitasta heitt um þessar mundir.
Ljósmynd/Pinterest
Safnhaugur. Nú er enginn maður með mönnum nema að vera með sinn eigin safnhaug úti á svölum eða úti í garði. Á Pinterest er aragrúi góðra hugmynda fyrir þá sem vilja feta þessar slóðir.
Ljósmynd/Pinterest