Avókadósúkkulaði væntanlegt í verslanir

Búast má við mikilli eftirspurn eftir avókadó súkkulaði.
Búast má við mikilli eftirspurn eftir avókadó súkkulaði. Ljósmynd/Compartes

Avókadóunnendur geta formlega tekið ást sína á næsta stig því sú tilkynning var að berast frá bandaríska súkkulaðiframleiðandanum Compartes að von væri á nýrri tegund súkkulaðis frá þeim: Avókadósúkkulaði.

Mikil leynd hefur hvílt yfir gerð súkkulaðisins, hvernig það muni bragðast og ekki síst úr hverju það sé gert. Hver verða hlutföll avókadós og súkkulaðis (sem er ákaflega mikilvægt) og hvernig áhrif mun það hafa á líkama og sál?

Allt fullkomlega löggildar spurningar sem vonandi fæst svar við fljótlega.

Hvert súkkulaðistykki mun kosta um 1100 krónur og verður fyrst um sinn aðeins fáanlegt vestanhafs.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert