Heimtaði samlokuna sína

Liam Neeson.
Liam Neeson. Skjáskot Google

Á dauða sínum átti hann von en ekki þessu. Veitingahúsaeigandi nokkur í Vancouver í Kanada var óhemju spenntur þegar hann komst að því að einn af hans uppáhaldsleikurum, Liam Neeson, væri staddur þar í borg við tökur á nýjustu mynd sinni, Hard Power.

Á þriðjudaginn ákvað hann að setja út skilti sem á stóð „Hér borðar Liam Neeson frítt.“

Ekki bjóst hann við neinu nema kannski smá athygli frá gangandi vegfarendum og allra síst því að Neeson myndi mæta.

En hann mætti klukkan hálfsjö um kvöldið, gekk rólegur inn og spurði afgreiðslumanninn hvar í óköpunum ókeypis samlokan hans væri.

Hann fékk að sjálfsögðu allt að borða sem hann vildi og það eina sorglega við þessa annars fallegu sögu er að sjálfur eigandinn missti af öllu saman.

Neeson ásamt tveimur starfsmönnum veitingastaðarins og skiltinu góða.
Neeson ásamt tveimur starfsmönnum veitingastaðarins og skiltinu góða. ljósmynd/Big Star Sandwich
Skiltið góða.
Skiltið góða. ljósmynd/Big Star Sandwich
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert