Mini IHOP-morgunverðarpönnsur Berglindar

Berglind var ekki lengi að smella í þessar dúllur.
Berglind var ekki lengi að smella í þessar dúllur. mbl.is/gotteri.is

Berglind Hreiðarsdóttir bloggari á gotteri.is lætur það ekki stoppa hrærivélina að vera með nokkurra vikna barn í fanginu enda ákaflega verkleg og orkumikil. Matarvefurinn óskar Berglindi innilega til hamingju með gullmolann en hún er ein af okkar uppáhaldsbloggurum.

„Á mánudaginn útbjuggum við elsta dóttir mín „Brunch“ í tilefni af verkalýðsdeginum og langri skólafríshelgi hjá eldri dömunum á heimilinu. Við ákváðum að prófa nýja pönnukökuuppskrift og þar sem við elskum IHOP (International House of Pancakes) gúgluðum við eftirlíkingu af slíkri uppskrift. Reyndar eru pönnukökurnar á IHOP risastórar og dugar ein fyrir flesta með öðru meðlæti en þar sem við vorum ekki enn búnar að prófa nýju pönnuna okkar sem gerir nokkrar litlar pönnsur í einu ákváðum við að gera mini útfærslu af þessum og voru þær dásamlega góðar,“ segir Berglind alsæl með árangurinn.

Míní IHOP-pönnukökur

1 ¼ bolli hveiti
1 ½ tsk. lyftiduft
2 ½ tsk. sykur
½ tsk. salt
½ tsk. matarsódi
1 ½ – 2 bollar „buttermilk“ (mjólk og 3 tsk. sítrónusafi látið sitja í 5 mín.)
2 msk. matarolía
1 egg

Blandið þurrefnum saman í skál.

Hellið því næst 1 ½ bolla af buttermilk, matarolíu og eggi saman við og blandið þar til kekkjalaust.

Þynnið deigið með meiri buttermilk ef ykkur þykir þess þurfa.

Steikið á meðalháum hita þar til loftbólur myndast og snúið þá við.

Berið fram með ávöxtum og sírópi.
Þessi skammtur hentaði vel fyrir okkur fjölskylduna (4 talsins) með beikoni, eggjum og ávöxtum og voru aðeins örfáar litlar pönnukökur eftir.

Gott er að bera pönnukökurnar fram með sírópi, ávöxtum, grískri …
Gott er að bera pönnukökurnar fram með sírópi, ávöxtum, grískri jógúrt eða nutella. mbl.is/gotteri.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert