Klósettpappírinn er búinn!

Heimilisfólk setur nýja rúllu þegar sú síðasta klárast, en ef …
Heimilisfólk setur nýja rúllu þegar sú síðasta klárast, en ef við erum gestir er sjálfsögð kurteisi að láta gestgjafa vitað að pappírinn sé búinn. Ljósmynd / Getty Images

Matarbloggarinn og herramaðurinn Albert Eiríksson er afar fróður um manna- og borðsiði. Hér koma nokkrar ákaflega þakklátar ábendingar frá honum. Smelltu hér til að lesa fleiri kurteisisheilræði.

„Þegar líður að lokum klósettdvalar getur verið vandræðalegt að uppgötva að klósettpappírinn er búinn. Heimilisfólk setur nýja rúllu þegar sú síðasta klárast, en ef við erum gestir er sjálfsögð kurteisi að láta gestgjafa vitað að pappírinn sé búinn. Þetta á við um heimahús, kaffihús, veitingahús og fleiri slíka staði. Þessi litla en mikilvæga tilkynning þarf ekki að gerast með neinum tilþrifum og óþarfi að aðrir gestir heyri hana. Við látum líka vita ef eitthvað vantar eða er í ólagi á snyrtingunni. Sköpum ekki vandræðalegar stundir fyrir fólk sem kemur á eftir okkur á klósettið.

Eins og kunnugt er sturtast misvel niður úr klósettum, það getur því verið þjóðráð að lyfta upp og athuga hvort ekki hafi örugglega allt farið sína leið. Ef fólk lendir í því að skilja eftir „bremsufar“ í klósettskálinni er fátt annað við því að gera en taka klósettburstann og hreinsa. Ekki bara láta eins og ykkur sé „skít“sama.“

Nokkur atriði sem ágætt er að hafa í huga þegar við erum gestir:

  • Vantar klósettpappír, sápu, handþurrkur?
  • Síminn með á klósettið? Tja varla
  • Klósettferðir eiga ekki að taka langa tíma
  • Dropar á gólfið? Þurrka upp
  • Einhver fer á klósettið á eftir þér, hann sér hvernig þú skilur við það!
  • Dömubindi fara ekki í klósettið
  • Svölum ekki forvitni okkar með því að kíkja í skápa og skúffur
  • Göngum vel um baðherbergið
  • Þvoum hendur og þerrum dropa af vaski á eftir með pappír.

Nokkur atriði fyrir gestgjafa sem gott er að hafa í huga áður en gestirnir koma:

  • Ilmkerti
  • Handsápa
  • Handáburður
  • Hreint handklæði
  • Sótthreinsandi spritt
  • Heil klósettpappírsrúlla
  • Klósett og vaskur yfirfarið
Ekki vera hrædd/ur við klósettburstann. Hann er til þess að …
Ekki vera hrædd/ur við klósettburstann. Hann er til þess að nota hann! mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert