Ólöglega góð súkkulaðibomba

Þessi súkkulaðikaka lýsir upp langa daga.
Þessi súkkulaðikaka lýsir upp langa daga. mbl.is/http://www.gotteri.is

Berglind Hreiðarsdóttir á gotter.is er í bökunarstuði. „Á dögunum prófaði ég nýja útfærslu af brownies þar sem ég setti karamellusúkkulaðið Center á milli deiglaga fyrir bakstur og ég ætla ekki að segja ykkur hvað hún var góð þessi. Síðan þeytti ég rjóma með Nesquick-kakói og fór sá súkkulaðirjómi einstaklega vel með bitunum.“

Center-karamellu-brownies

  • 225 gr. smjör við stofuhita
  • 260 gr. sykur
  • 3 egg
  • 3 tsk. vanilludropar
  • 270 gr. suðusúkkulaði (brætt)
  • ½ tsk. salt
  • 2 msk. bökunarkakó
  • 160 gr. hveiti
  • 3 msk. volgt vatn
  • 3 x Center (3 x 78 gr.) skorin til helminga

Hitið ofninn í 175°C.

  1. Klæðið skúffukökuform ( ca 30 x 40 cm) með bökunarpappír og geymið.
  2. Skerið Center-súkkulaðið til helminga og geymið.
  3. Þeytið saman sykur og smjör.
  4. Bætið eggjum saman við einu í einu og skafið niður á milli, því næst vanilludropunum og bræddu súkkulaðinu.
  5. Þurrefnin koma þar á eftir og volgt vatnið.
  6. Setjið ½ af deiginu í formið, stráið Center á milli og setjið svo restina af deiginu þar yfir.
  7. Bakið í um 35-40 mínútur eða þar til prjónn kemur út með smá kökumylsnu á (ekki blautu deigi).
  8. Kælið vel, lyftið upp úr forminu og skerið í bita.
  9. Berið fram með þeyttum súkkulaðirjóma.

Súkkulaðirjómi

  • 400 ml rjómi
  • 2 tsk. Nesquick-kakó

Þeytt saman og borið fram með kökunni.

mbl.is/http://www.gotteri.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert