Guðdómlegur morgunverður Júlíu

„Acai-berin eru eitt af mínu uppáhalds-súperfæði. Berin vaxa víða í …
„Acai-berin eru eitt af mínu uppáhalds-súperfæði. Berin vaxa víða í Brasilíu og eru stútfull af andoxunarefnum sem eru góð fyrir húðina og ónæmiskerfið,“ segir Júlía. mbl.is/lifdutilfulls.com

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi kann svo sannarlega að gera fallegan og næringarríkan morgunmat. Þessi uppskrift er frá henni en fleiri uppskriftir og heilsupistla Júlíu má nálgast hér.  „Acai-berin eru eitt af mínu uppáhalds-súperfæði. Berin vaxa víða í Brasilíu og eru stútfull af andoxunarefnum sem eru góð fyrir húðina og ónæmiskerfið. Berin eru sérstaklega þekkt fyrir að stuðla að þyngdartapi sem og getu líkamans til að viðhalda heilbrigðri þyngd. Ekki sakar að berin eru einnig talin geta hægt á öldrunarferli líkamans! Acai-skálar eru vinsælar erlendis og þegar ég dvaldi í LA síðastliðinn nóvember í hráfæðiskokkanáminu voru acai-skálar algengur brunch eða morgunverður á veitingastöðum. Hefðbundnar Acai-skálar eru með Acai-berjamauki sem fæst sjaldan hérlendis svo ég nota acai-duft, æðislegu íslensku krækiberin og sólber,“ segir Júlía alsæl með útkomuna.

2 msk. kókosjógúrt eða kæld kóksmjólk (notið aðeins þykka hlutann)
1 banani, frosinn eða ferskur
1/2 bolli frosin blanda af (krækiberjum, hindberjum, brómberjum, sólberjum)
1/2-1 msk. acai-duft (fæst í Nettó)
4 dropar stevia með vanillubragði
kókosvatn eftir þörfum

Hugmyndir ofan á

banani
mangó
jarðarber
hindber
frosin krækiber
hamp-fræ
mórber
kakónibbur
mynta
súkkulaðihjörtu (avócadómús sett í sæt konfektform – uppskrift úr Sektarlausu sætinda-rafbókinni)


1. Setjið kókosmjólkurdósina í kæli svo hún þykkni vel. Bætið aðeins þykka hluta hennar í blandarakönnu ásamt banana, frosnum berjum og hrærið þar til silkimjúkt.

2. Bætið við acai-dufti, steviu og kókosvatni eftir þörfum.

3. Hellið í skál og fegrið með einhverju af hugmyndunum hér að ofan. Njótið.

 

Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi heldur úti síðunni lifdutilfulls.is.
Júlía Magnúsdóttir heilsumarkþjálfi heldur úti síðunni lifdutilfulls.is.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert