Ný ídýfa tryllir landsmenn

Tyrkneska piparsúkkulaðiídýfan rífur í.
Tyrkneska piparsúkkulaðiídýfan rífur í. mbl.is/tm

Ís með dýfu er klassískt helgargúmmelaði. Landsmenn hafa hrúgast í ísbúðir landsins með hækkandi hitastigi. Af og til detta inn skemmtilegar nýjungar í ísbúðir en nú er það sterksúkkulaðiídýfa sem landsmenn sjá ekki sólina fyrir. Um er að ræða tyrkneskt-piparduft sem hittir súkkulaðiídýfu og úr verður kröftug hamingjusprengja. Matarvefurinn kíkti í ísbúðina Laugalæk í dag og smakkaði herlegheitin sem komu skemmtilega á óvart. Pipar- og lakkrísunnendur geta því án efa fallið í yfirlið en þeir hörðustu fá sér lakkrískurl með ídýfunni.

Nýja ídýfan þykir líkleg til vinsælda.
Nýja ídýfan þykir líkleg til vinsælda. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert