Meira í boxunum í Costco

Berjaboxin eru ákaflega bústin hjá Costco.
Berjaboxin eru ákaflega bústin hjá Costco. mbl.is/Skjáskot facebook

Facebook-grúppan Keypt í Costco Ísl.- Myndir og verð. hefur heldur betur slegið í gegn en yfir 60.000 notendur hafa skráð sig í gúppuna. Tugir færsla koma þar inn daglega þar sem verið er að birta verð og vörur úr Costco og veita upplýsingar um hvað fæst í versluninni. 

Berin í versluninni hafa hlotið mikla athygli en samkvæmt upplýsingum á síðunni koma þau fersk með flugi daglega. Fjöldi manns hefur vigað hinar ýmsu pakkningar með berjum en svo virðist sem um töluvert umframmagn sé í pakkningunum. Þannig má nefna á kíló af jarðaberjum er 1200-1300 grömm samkvæmt myndum á umræddri facebook grúppu. Á síðunni er að finna fjöldan allan af færslum sem allar benda til þess að fleiri tegundir af berjaboxum innihaldi mun meira en merkingarnar segja til um. Fólk hefur einnig vigtað án umbúða og niðurstaðan er samt sem áður sú að magnið sé mun meira en búast mætti við.

mbl.is/Skjáskot facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert