Ljúffengar gamaldags tebollur með rúsínum

Hver vill ekki volga tebollu með mjólk í kaffitímanum?
Hver vill ekki volga tebollu með mjólk í kaffitímanum? mbl.is/Helena Gunnars

Hin huggulega Helena Gunnarsdóttir matarbloggari á eldhusperlur.com er nýjasti liðsmaður matarbloggaraklansins á Matarvef mbl.is. Við á vefnum elskum Helenu og fáum hreinlega vatn í munninn í hvert einasta skipti sem hún kemur nálægt eldhúsi. Hér deilir hún gamalli og góðri uppskrift sem svíkur engan.

Ég get ekki mælt nógu mikið með að þið prófið að baka þessar dásamlegu tebollur. Ég er kannski ekki alveg hlutlaus, enda komin tæpa 6 mánuði á leið með furðulegar langanir í hitt og þetta. Þessar tebollur voru eitt af því og ég ekki í rónni fyrr en baksturinn hafði átt sér stað. Og maður minn, ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Uppskriftin er gömul og góð og ég man hreinlega ekki hvaðan hún kemur, hún er handskrifuð á miða innan um helling af öðrum uppskriftum inni í gamalli uppskriftabók hjá mér,“ segir Helena í nýrri færslu.

Dúnmjúkar gamaldags tebollur með rúsínum (um það bil 22 bollur)

  • 200 gr. mjúkt smjör
  • 200 gr. sykur
  • 3 egg
  • 1/2 tsk. sítrónudropar
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 450 gr. hveiti
  • 1 msk. lyftiduft
  • 1/2 tsk. salt
  • 1 dl mjólk
  • 200 gr. rúsínur (Má líka nota súkkulaði í staðinn fyrir rúsínur)

Aðferð: Hitið ofn í 180 gráður með blæstri. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst, alveg í 3-5 mínútur í hrærivél. Bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli. Bætið sítrónu og vanilludropum saman við. Hrærið hveitinu, saltinu og lyftiduftinu saman og bætið að lokum út í ásamt mjólkinni og rúsínum.

Hrærið þar til allt blandast vel saman, en gætið þess að hræra ekki mikið eftir að hveitið er komið út í, bara þannig að allt sé komið saman. Setjið deigið með tveimur matskeiðum eða stórri ísskeið á bökunarpappírsklædda ofnplötu. Hver bolla hjá mér var ca. tvær vel fullar matskeiðar af deigi. Bakið í 8-10 mínútur eða þar til bakaðar í gegn og fallega ljósgullinbrúnar.

mbl.is/Helena Gunnars
Matgæðingurinn Helena Gunnarsdóttir deilir uppskriftum sínum og hugrenningum um mat …
Matgæðingurinn Helena Gunnarsdóttir deilir uppskriftum sínum og hugrenningum um mat og matargerð á blogginu Eldhúsperlur.com. Kristinn Ingvarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert