Heimilislína H&M ekki fáanleg hérlendis

H&M býður upp á gott úrval af svuntum,viskustykkjum, ilmkertum, dúkum …
H&M býður upp á gott úrval af svuntum,viskustykkjum, ilmkertum, dúkum og borðbúnaði. mbl.is/HM.com

Eins og frægt er orðið opnar sænski tískurisinn H&M verslun hérlendis í haust. Margir fagurkerar hafa hugsað sér gott til glóðarinnar þar sem heimilislína H&M er ákaflega falleg og á góðu verði en nú er komið í ljós að hún verður ekki seld hérlendis. Fréttablaðið greindi frá þessu í gær. 

Matarvefurinn heimsótti nýlega stærstu heimilisdeild H&M í London sem var full af fallegum hlutum fyrir heimilið og eldhúsið. H&M býður upp á gott úrval af svuntum, viskustykkjum, ilmkertum, dúkum og borðbúnaði. Landsmenn ættu því að grípa tækifærið í næstu utanlandsferð og líta inn í heimilisdeildina sem skartar fallegu frumskógar- og gullþema um þessar mundir. Það verður þó að viðurkennast að ekki er skemmtilegt að bera matardiska og kerti milli landa og því töluvert áfall fyrir unnendur H&M-heimilislínunnar að hún verði ekki fáanleg í versluninni hérlendis.

Gyllt og brons er áberandi í línu H&M í sumar.
Gyllt og brons er áberandi í línu H&M í sumar. mbl.is/HM.com
Frumskógarþemað er áberandi í dúkum, viskustykkjum, púðaverum, kertum ogservéttum.
Frumskógarþemað er áberandi í dúkum, viskustykkjum, púðaverum, kertum ogservéttum. mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
Afmælisvörur.
Afmælisvörur. mbl.is/HM.com
Pappavörur í afmæli og garðveislur.
Pappavörur í afmæli og garðveislur. mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
Þetta fallega stell kemur í þremur litum.
Þetta fallega stell kemur í þremur litum. mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
mbl.is/HM.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert