Brjálað kökupartý í Kópavogi

Eva María Hallgrímsdóttir, eigandi Sætra synda, er alsæl með nýju …
Eva María Hallgrímsdóttir, eigandi Sætra synda, er alsæl með nýju kökubúðina í Kópavogi. Samsett mynd mbl.is /Kjartan Einarsson

Eva María Hallgrímsdóttir, eigandi kökugerðarinnar Sætar syndir, hefur flutt bökunaraðstöðu sína í Hlíðasmára í Kópavogi. Nú er einnig hægt að koma við og velja úr tilbúnum kökum fyrir þá sem vilja gleðja með litlum fyrirvara. „Í nýja húsnæðinu okkar erum við erum með mjög stóran ofn og hrærivél og erum því nokkuð fljótar að baka vikuskammtinn okkar en við vinnum alltaf viku í senn, þ.e. á mánudögum förum við yfir allar pantanir sem við þurfum að skila af okkur og undirbúum allt skraut og svo bakstur,“ segir Eva alsæl með nýtt og betra húsnæði. Í tilefni flutninganna var því haldið dísætt innflutningspartý þar sem kolvetnisþoka og kökudraumar mættust.

Aðspurð hvað sé vinsælast í tertum sem stendur segir Eva að svokallaðar drip-kökur sé ákaflega vinsælar. Drip-kökur eru sum sé tertur þar sem kremið virðist leka niður hliðarnar. 

Drip-kökurnar svokölluðu eru mjög vinsælar.
Drip-kökurnar svokölluðu eru mjög vinsælar.

„Vinsælasta fyllingin okkar þessa dagana er vanillubotnar með saltkaramellu og smjörkremi sem og súkkulaðibotnar með saltkaramellu. Við búum til okkar eigin saltkaramellu og hefur hún slegið í gegn,“ segir Eva sem hlakka til þess að taka á móti kökuþyrstum kaupendum í Kópavogi. „Til að byrja með verði drip-kökur og bollakökur til sölu í kökubúðinni auk sérpantaðra terta en stefnan er að auka við vöruúrvalið jafnt og þétt.“

Anna Hrafnhildur Haukdal, Atli Björgvinsson og Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir.
Anna Hrafnhildur Haukdal, Atli Björgvinsson og Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir. mbl.is/Kjartan Einarsson
Eva María Hallgrímsdóttir og Guðrún Tinna Ólafsdóttir.
Eva María Hallgrímsdóttir og Guðrún Tinna Ólafsdóttir. mbl.is/Kjartan Einarsson
Það var glatt á hjalla í kökupartýinu í Kópavogi.
Það var glatt á hjalla í kökupartýinu í Kópavogi. mbl.is/Kjartan Einarsson
Fanney Gerða Gunnarsdóttir og Hallgrímur G. Sverrisson skemmtu sér vel.
Fanney Gerða Gunnarsdóttir og Hallgrímur G. Sverrisson skemmtu sér vel. mbl.is/Kjartan Einarsson
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, Vigdís Sverrisdóttir og Eva María Hallgrímsdóttir.
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, Vigdís Sverrisdóttir og Eva María Hallgrímsdóttir. mbl.is/Kjartan Einarsson
Ragnar Jóhannsson og Halldór Ólafsson.
Ragnar Jóhannsson og Halldór Ólafsson. mbl.is/Kjartan Einarsson
Girnilegar veitingar að hætti Evu.
Girnilegar veitingar að hætti Evu. mbl.is/Kjartan Einarsson
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, Vigdís Sverrisdóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Valdís Ragnarsdóttir.
Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir, Vigdís Sverrisdóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Valdís Ragnarsdóttir. mbl.is/Kjartan Einarsson
mbl.is/Kjartan Einarsson
Guðrún Skúladóttir og Eva María Hallgrímsdóttir.
Guðrún Skúladóttir og Eva María Hallgrímsdóttir. mbl.is/Kjartan Einarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert