Þetta er maturinn sem mokselst í Costco

Hér má sjá brot af vinsælum vörum sem fást í …
Hér má sjá brot af vinsælum vörum sem fást í Costco. samsett mbl.is/

Matarvefurinn kíkti í Costco og rýndi í körfur landsmanna og ræddi við afgreiðslufólk og viðskiptavini um hvað væri vinsælast í matvöru. Það vinsælasta er án efa fersku berin en gott úrval er af berjum og seljast kirsuber, bláber, hindber, brómber og jarðber í stórum stíl daglega. Starfsfólkið talar um kirsuberja og bláberjaæði. 

Framandi ostar, kjöt, íslensku kjúklingur í magnpakkningum og ferskt pasta selst þar að auki ákaflega vel. Einn viðskiptavinur sem við ræddum við var að kaupa ferskar kjúklingabringur í frystinn en hún sagði að þær hefðu verið uppseldar daginn áður svo hún kom aftur. Um er að ræða 100% Holta kjúkling sem áður fékkst í Bónus en fæst nú í Costco.

Við mælum með að gera innkaupalista með plássið í frystinum, skápunum og ísskápum að leiðarljósi þar sem margt er selt í ansi tórum pakkningum t.d. eru granatepli seld í kössum og tómatar í dós í 6-pakkningu.

Hér að neðan má sjá myndir af nokkrum matvörum sem eru að „trenda“ (vaxa hratt í vinsældum) um þessar mundir. Verð má sjá á flestum myndum.

Detoxpakkar á 2999 krónur sem innihald 3 mismunandi smápakka (14 …
Detoxpakkar á 2999 krónur sem innihald 3 mismunandi smápakka (14 í heild) sem henta í þeyting. Einnig er lítið bréf á stærð við tepoka sem inniheldur ofurduft á borð við hveitigras. mbl.is/TM
Smákökur í yfirstærð seljast vel og eru vinsælar með kaffinu.
Smákökur í yfirstærð seljast vel og eru vinsælar með kaffinu. mbl.is/TM
Avocadóolían er stútfull af hollri fitu og hentar vel til …
Avocadóolían er stútfull af hollri fitu og hentar vel til eldunar við hátt hitastig. mbl.is/TM
Pekanhneturnar eru seldar í kílóapokum.
Pekanhneturnar eru seldar í kílóapokum. mbl.is/TM
Franski Brie osturinn þykir afburðar góður sem og Bufalo mozerella …
Franski Brie osturinn þykir afburðar góður sem og Bufalo mozerella osturinn. mbl.is/eldhussogur.com
Pítsurnar í Costco eru mjög vinsælar en þær eru bakaðar …
Pítsurnar í Costco eru mjög vinsælar en þær eru bakaðar á staðnum og fást einnig í veitingasölunni í andyrinu í sneiðum. mbl.is/TM
Gulrótartertan þykur mjög bragðgóð og á góðu verði.
Gulrótartertan þykur mjög bragðgóð og á góðu verði. mbl.is/TM
Mikið úrval er af heilsuvöru í Costco á góðu verði. …
Mikið úrval er af heilsuvöru í Costco á góðu verði. Möluð hörfræ fást þar á góðu verði og henta vel í morgungrauta. mbl.is/TM
Kakónibburnar eru á mjög góðu verði.
Kakónibburnar eru á mjög góðu verði. mbl.is/TM
Kókosvatnið hefur hlotið mikla athygli og fæst bæði í kókoshnetum …
Kókosvatnið hefur hlotið mikla athygli og fæst bæði í kókoshnetum og fernum. Verðið á fernunum er það ódýrasta sem sést hefur hérlendis. mbl.is/TM
Engir pokar eru í Costco og því tilvalið að kaupa …
Engir pokar eru í Costco og því tilvalið að kaupa kælitösku undir frosinn varning. mbl.is/TM
Kókosolían selst í bílförmum.
Kókosolían selst í bílförmum. mbl.is/TM
Hveitigrasið er á 799 kr pokinn sem er hátt í …
Hveitigrasið er á 799 kr pokinn sem er hátt í 600 g. mbl.is/TM
Möndlusmjörið er ákaflega kremað og er æði vinsælt.
Möndlusmjörið er ákaflega kremað og er æði vinsælt. mbl.is/TM
Majonesið er í óhuggulega stórum fötum.
Majonesið er í óhuggulega stórum fötum. mbl.is/TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert