Grillaðir tómatar að hætti Hrefnu Rósu

Gráðostafylltir tómatar eru hið mesta lostæti.
Gráðostafylltir tómatar eru hið mesta lostæti. mbl.is/islenskt.is

Um þessar mundir er ákaflega mikið um fallega íslenska tómata í verslunum. Inni á islenskt.is er að  finna gott uppskriftasafn en þaðan er þessi uppskrift komin. Uppskriftin er frá grilldrottningunni Hrefnu Rósu Sætran og steinliggur með grillmatnum. 

4 stk. tómatar
1 pk. gráðaostur
1 stk. shallottulaukur
1 rif hvítlaukur
1 bréf basil
Salt og pipar
Álpappír


Skerið toppinn af tómötunum og takið kjarnann úr þeim. Blandið kjarnanum við gráðaostinn, saxaðan shallottulaukinn og hvítlaukinn. Rífið basilblöðin niður, bætið þeim út í og kryddið með salti og pipar. Fyllið tómatana með fyllingunni og vefjið í álpappír. Grillið eða ofnbakið í um það bil 20 mín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert