Ferskur aspas með parmaskinku

Ljósmynd/Loli.is

Lólí kann að krydda tilveruna eins og hún gerir reglulega í samnefndu bloggi sínu sem er lesendum Matarvefjarins að góðu kunnugt. 

Hér deilir hún dýrindisuppskrift að grilluðum aspas með parmaskinku sem lofar sannarlega góðu. Sjálfs segir Lólí:

„Ferskur aspas er frábær tilbreyting með kjötinu eða fisknum í staðinn fyrir salatið. Hann er svo góð viðbót með aðalréttinum, nú eða sem forréttur í matarboðið. Ef ég ber hann fram sem forrétt er gott að hafa annaðhvort gott balsamiksíróp með eða skella í góða kalda sósu til að bera fram með. Ef þið hafið ekki prófað ferskan aspas hvet ég ykkur til að taka eina tilraun með þessa uppskrift, þetta klikkar alls ekki.“

Ferskur aspas með parmaskinku

  • 1 búnt ferskur grænn aspas
  • 1 dl ólífuolía eða hvítlauksolía
  • salt og pipar
eftir smekk
  • 1 bréf parmaskinka
  • Parmesanostur til að rífa yfir
  • Balsamiksíróp (ef vill)

Aðferð:

  1. Byrjið á því að skera neðan af aspasnum, svona eins og 2 cm því sá hluti er yfirleitt trénaður. Takið 3 aspas og rúllið einni sneið af parmaskinku utan um, leggið á bakka og dreifið olíunni og kryddinu yfir.
  2. Svo er að grilla þá á útigrillinu í 10 mínútur og passa vel að snúa reglulega, en þið getið líka sett hann í ofninn eða á pönnuna.
  3. Um leið og þið takið aspasinn af hitanum er gott að rífa parmesanostinn strax yfir svo að hann bráðni aðeins ofan á. Svo er bara að bera þetta fram og njóta!!!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert