Mikil stemning á bjórhátíð

Mikið úrval bjórtegunda var í boði. Glösin voru jafnframt sérútbúin …
Mikið úrval bjórtegunda var í boði. Glösin voru jafnframt sérútbúin fyrir bjórhátíðina. Árni Sæberg

Bjórhátíð Maine Beer Box fór fram um helgina og komust færri að en vildu. Hið svokallaða Maine Beer Box er í raun gámur sem búið er að breyta í stærstu bjórdælu heims. Þar gefur að líta úrval 78 bjórtegunda frá örbrugghúsum í Maine-ríki í Bandaríkjunum en það er vinsæll áfangastaður bjóráhugafólks enda mikil og blómleg örbruggmenning þar. Einnig var boðið upp á íslenska bjóra auk þess sem nýir bjórar voru frumsýndir. 

Hátíðin tókst vel og uppselt var. Eins og sjá má á þessum myndum var glatt á hjalla og menn greinilega ánægðir með framtakið. 

Hátíðin var sannkallaður hvalreki fyrir bjóráhugafólk.
Hátíðin var sannkallaður hvalreki fyrir bjóráhugafólk. Árni Sæberg
Ánægjan og áhuginn skein úr andlitum gesta.
Ánægjan og áhuginn skein úr andlitum gesta. Árni Sæberg
Mikill fjöldi sótti hátíðina heim.
Mikill fjöldi sótti hátíðina heim. Árni Sæberg
Blíðskaparveður var og mikil stemning.
Blíðskaparveður var og mikil stemning. Árni Sæberg
Búllan sá um borgarana.
Búllan sá um borgarana. Árni Sæberg
Eins og sjá má var margt um manninn.
Eins og sjá má var margt um manninn. Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert