Þetta borða Downey og félagar milli taka

Það er greinilega ekki leiðinlegt hjá þessum félögum.
Það er greinilega ekki leiðinlegt hjá þessum félögum. Ljósmynd/Robert Downey/Twitter

Það er æðsti draumur margra leikara að leika ofurhetjur og þessir kappar hafa gert það vel í gegnum tíðina. Verið er að taka upp enn eina Avengers-myndina og ákvað Robert Downey Jr. að deila mynd á Twitter af þeim félögum. 

Um er að ræða Benedict Cumberbatch sem leikur Dr. Strange, Mark Ruffalo sem leikur Hulk og Benedikt Wong sem leikur Wong.

Sátu þeir félagar við matarborðið og hafði Matarvefurinn að sjálfsögðu áhuga á að sjá hvað þessir kappar voru að snæða. Máltíðin var af léttari gerðinni og sést Ruffalo með salat auk þess sem Pellegrino-vatn og gos er áberandi. Áhugaverðastur er þó væntanlega andlitssvipur Cumberbatch en hann mundar heita sósu sem heitir Hotlanta Hot Sauce og ku vera býsna sterk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert